
Vilhjálmur Árnason alþingismaður var nú í vikunni sæmdur Hvatningarverðlaunum Rafíþróttasambands Íslands fyrir mikilvægt og óeigingjarnt framlag sitt til uppbyggingar og eflingar rafíþrótta á Íslandi.
Verðlaunin voru afhent í beinni útsendingu, í Sjónvarpi Símans þar sem Tómas Jóhannsson, yfirlýsandi Ljósleiðaradeildarinnar, afhenti Vilhjálmi viðurkenninguna fyrir hönd Rafíþróttasambands Íslands. Viðurkenningunni er ætlað að draga fram mikilvægt framlag Vilhjálms til uppbyggingar, eflingar og viðurkenningar rafíþrótta hér á landi, bæði innan íþróttahreyfingarinnar og á vettvangi opinberrar umræðu.
„Takk fyrir að veita mér þessa viðurkenningu. Það hefur verið heiður að fá að vinna með Rafíþróttasambandi Íslands að þróun rafíþrótta hér á landi sem íþróttagreinar.
Stóra verkefnið er að tryggja rafíþróttum fulla viðurkenningu og þegar jafn mikið frumkvöðlastarf er unnið og hér hefur verið gert, þá er það skylda okkar stjórnmálamanna að standa með slíku framtaki,“
sagði Vilhjálmur meðal annars þegar hann veitti verðlaununum viðtöku.
Vilhjálmur þakkaði jafnframt það frumkvæði sem sýnt hefur verið við uppbyggingu rafíþrótta hér á landi og sagði að það hefði veitt fjölda barna og ungmenna aðgengi að íþróttastarfi og tómstundum, sem skipti sköpum fyrir félagsleg tengsl og þátttöku þeirra í samfélaginu. Hann bætti við að það væri skylda sín
„og okkar stjórnmálamanna, að aðstoða við þessa uppbyggingu og tryggja henni áframhaldandi framgang“.
Rafíþróttasamband Íslands telur framlag Vilhjálms hafa skipt sköpum við að ryðja rafíþróttum brautina hér á landi og stuðla að betri skilyrðum fyrir iðkendur, félög og starfsemi í greininni. Þá hefur hann lagt ríka áherslu á að jafna stöðu rafíþrótta við aðrar íþróttagreinar í þeirri viðleitni að tryggja þeim eðlilegan sess innan íslensks íþróttalífs.
“Rafíþróttastarf líkt og annað íþróttastarf byggist á óeigngjörnu framlagi einstaklinga og sjálfboðaliða að miklu leyti. Framlag Vilhjálms hefur verið bæði umfangsmikið og mikilvægt fyrir starfið.”
Segir Jökull Jóhannsson framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands.
Hvatningarverðlaun Rafíþróttasambands Íslands eru veitt einstaklingum sem með framlagi sínu, sýn og stuðningi hafa haft hvetjandi áhrif á þróun og framtíð rafíþrótta á Íslandi. Verðlaunin voru veitt í annað sinn, en þau voru veitt í fyrsta sinn á Skjálfta á síðasta ári, þá Birni Gíslasyni, formanni Fylkis og borgarfulltrúa.
Sjá einnig: Björn Gíslason hlýtur Hvatningarverðlaun RÍSÍ á Skjálfta
Mynd: Rafíþróttasamband Íslands



