Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Á stórmótinu Skjálfta var sviðið ekki aðeins vettvangur fyrir hefðbundna PC-titla heldur var einnig keppt í klassískum bardagaleik sem á sér óteljandi aðdáendur um allan heim, Super Smash Bros Melee. Þessi leikur, sem kom fyrst út árið 2001 á GameCube, lifir enn góðu lífi og hefur haldið sér sem einn af hornsteinum bardagaleikja. Í Melee-keppninni bar sigur úr býtum Aþena Ýr Ingimundardóttir sem spilar undir nickinu Athyr. Hún sýndi yfirvegun, hraða og nákvæmni sem gerði útslagið í hörðum viðureignum þar sem hver hreyfing getur ráðið úrslitum. Með sigrinum skrifaði hún nafn sitt í sögubók Skjálfta og undirstrikaði um leið að…

Lesa meira

Á Skjálfta var ekki einungis keppt í hefðbundnum skotleikjum, því inn á sviðið mætti einnig kraftmikill bardagaleikur sem hefur unnið hug og hjörtu milljóna, Super Smash Bros. Ultimate. Þar var mættur hópur leikmanna sem allir höfðu eitt markmið: að henda andstæðingunum út af skjánum og standa einn eftir sem sigurvegari. Það var enginn annar en Kristján Brynjólfsson, betur þekktur sem Juce Kid, sem fór með sigurinn að þessu sinni. Hann hafði fullkomna stjórn á persónunum sínum, las hreyfingar andstæðinga með snilld og sýndi yfirvegun sem er sjaldséð í jafn hraðskreiðum leik. Með því tryggði hann sér 1. sætið og glæsilegan…

Lesa meira

Á Skjálfta 2025 sýndu Apex Legends spilarar að það er hægt að sameina taktík og skothríð í einstaka stemmningu. Mótið fór fram í íþróttahúsi HK í Digranesi í Kópavogi, þar sem íslenska Apex-samfélagið hélt áfram í sínum hefðbundna dúr, með match-point + sigur kerfinu sem byggir á blöndu af taktískum aga og banvænu innsæi. Streymi frá leikjunum fór fram á twitch.tv/gametiviis þar sem áhorfendur gátu fylgst með hverri hreyfingu í raun­tíma. Keppt var bæði á staðnum og remote, en aðeins leikmenn með búsetu á Íslandi fengu að taka þátt. Í leikjunum var gefið stig fyrir bæði endanlegt sæti og kills,…

Lesa meira

Á Skjálfta 2025 var ekki aðeins háð barátta í tölvuleikjunum sjálfum heldur einnig utan þeirra. Í fyrsta sinn var keppt í flokknum Besta setupið, þar sem dómnefnd lagði mat á allt frá turninum sjálfum til heildarásýndar tölvubúnaðarins, þar á meðal lyklaborð, skjá og mús. Keppnin endurspeglaði bæði listræna nálgun og vandvirkni leikmanna í búnaði sínum. „Valið var afar erfitt og ljóst að metnaður keppenda var gífurlegur,“ sagði Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands, í samtali við esports.is. Að lokum stóð Nikulás Nikulásson, úr liðinu B2B í Apex Legends, uppi sem sigurvegari. Þar með tryggði hann sér titilinn fyrir besta setupið, ofan…

Lesa meira

Á stórmótinu Skjálfta 2025 var ekki aðeins háð barátta í tölvuleikjum heldur einnig keppt í stemmingskeppninni Bestu treyjurnar. Það var Ungmennafélagið Neisti frá Drangsnesi sem stóð uppi sem sigurvegari að þessu sinni, en liðið keppti í Counter-Strike. Með sterkum og samstilltum litum og einfalda en áhrifaríka hönnun tókst þeim að skila treyjum sem fengu dómnefndina til að lyfta brúnum og áhorfendur til að klappa af innlifun. Viðburðurinn sýnir að rafíþróttir snúast ekki aðeins um taktík og leikni, heldur líka um að skapa sjálfsmynd og menningu í gegnum búninga og merki. Neisti frá Drangsnesi bætist nú í hóp sigurvegara, sem setja…

Lesa meira

Breska liðið Team Vision lyfti bikarnum í Las Vegas þegar úrslitin í World Series of Warzone 2025 Global Final fóru fram. Ethan „Fifakill“ Pink, „Echo1867“ og Lennon „Lenun“ náðu yfirburðasigri á Gentle M8’s og tryggðu sér 300.000 bandaríkjadali, sem samsvarar um 36 milljónum íslenskra króna, í verðlaunafé. Úrslitin voru ráðin í áttunda leik þar sem Team Vision safnaði sér 153 stigum og tryggði sér „Match Point“ titilinn með glæsilegri frammistöðu. THE WINNING MOMENT 🏆🤯@VisionEsportggs | #WSOWGlobalFinal pic.twitter.com/bvYns4ny2Q — Call of Duty Esports (@COD_Esports) October 2, 2025 Gentle M8’s voru einu andstæðingarnir sem höfðu möguleika á að stela sigrinum en enduðu…

Lesa meira

Það er ekki á hverjum degi sem spilurum býðst að stíga inn í heim þar sem Disney-gleði mætir nördahúmor. Í nýrri stiklu sem sýnd var á PC Gaming Show: Tokyo Direct stígur Billie á sviðið í Billie Bust Up, litríkum og taktbundnum ævintýraleik sem lofar að láta hjartað slá í takt við tónlistina. Leikurinn sækir innblástur í klassískar teiknimyndir en blæs nýju lífi í hefðina með nútímalegum tölvuleik. Billie er vopnuð töfrandi regnhlíf sem bæði ver og ræðst, en lykillinn að öllu er sjálfur takturinn. Í tilkynningu frá Giddy Goat Games* kemur fram að hver bardagi er eins konar tónleikaslagur…

Lesa meira

Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) veitti Birni Gíslasyni, formanni Fylkis og borgarfulltrúa, sérstaka viðurkenningu á Skjálfta nú um helgina fyrir óeigingjarnt og ómetanlegt framlag hans til uppbyggingar rafíþrótta á Íslandi. Í tilkynningu frá RÍSÍ kemur fram að viðurkenningin, sem ber heitið Hvatningarverðlaun Rafíþróttasambands Íslands, var afhent í fyrsta skipti við hátíðlega athöfn á Skjálfta af Willum Þór Þórssyni forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), Kára Björnssyni formanni RÍSÍ og Ólafi Hrafni Steinarssyni, stofnanda og fyrrverandi formanni sambandsins. „Með þessari viðurkenningu viljum við heiðra ómetanlegt framlag Björns við að efla samfélag rafíþrótta á Íslandi, skapa jákvæðar fyrirmyndir og stuðla að áframhaldandi vexti og viðgangi…

Lesa meira

Håvard „rain“ Nygaard, eitt helsta andlit FaZe Clan í Counter-Strike í tæp 10 ár, hefur verið settur á bekkinn. Tilkynningin birtist í dag bæði frá félaginu og leikmanninum sjálfum, ásamt tilfinningaþrungnu myndbroti sem rifjar upp sigursæla tíma hans innan liðsins. Thank you, Mr. FaZe Clan ❤️ Family forever @FaZe_rainCS ♾ pic.twitter.com/9RUsiTrZJH — FaZe Esports (@FaZeEsports) September 29, 2025 Rain þakkaði liðsfélögum, stuðningsfólki og stjórninni fyrir „tíu ógleymanleg ár“ og lagði áherslu á að ferlinum væri langt frá lokum. Hann staðfesti að hann hyggðist halda áfram í keppni og væri opinn fyrir nýjum tilboðum, jafnvel í hlutverki IGL, sem væri honum…

Lesa meira

Alþjóðlegi útgefandinn GRYPHLINE hefur tilkynnt að forskráning er nú hafin á PlayStation 5 fyrir væntanlegan leik Arknights: Endfield, nýjan rauntíma 3D RPG þar sem stefnumótandi átök, könnun og tæknileg uppbygging fléttast saman í eina heild. Í tilkynningu frá GRYPHLINE kemur fram að leikurinn má nú finna í PlayStation Store þar sem aðdáendur geta bætt honum á óskalista sinn. Í tilefni þessa hefur GRYPHLINE birt nýtt, ítarlegra kynningarmyndband sem sýnir upptökur úr inngangskafla leiksins, teknar beint upp á PS5 í fyrsta sinn. Arknights: Endfield er í þróun fyrir PlayStation 5, PC og farsíma og stefnt er að alþjóðlegri útgáfu snemma árs…

Lesa meira