Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Einn virtasti Counter-Strike spilarinn í heimi, Oleksandr „s1mple“ Kostyliev, hefur formlega kvatt lið sitt, Natus Vincere (NAVI), og skrifað undir samning við nýtt lið á vegum veðmálafyrirtækisins BC.GAME. Með þessari ákvörðun lýkur einni merkustu vegferð í sögu rafíþrótta. s1mple gekk til liðs við NAVI árið 2016 og hefur síðan orðið að óumdeildum lykilmanni í velgengni félagsins. Meðal afreka hans má nefna sigur á Major-mótinu í Stokkhólmi árið 2021 og fjölda annarra titla sem staðfestu stöðu hans sem fremsta leikmann heims. Í yfirlýsingu segir s1mple að tími sé kominn á nýjar áskoranir og að hann hafi heillast af framtíðarsýn BC.GAME. Þar…

Lesa meira

Rússneska rafíþróttaliðið BetBoom hefur hefur sett Sergey „Ax1Le“ Rykhtorov á bekkinn í kjölfar endurskipulagningar á CS2-liði sínu. Árangur hans hefur þó farið dvínandi síðan skipt var yfir í CS2, og hafa sögusagnir um brotthvarf hans farið vaxandi. Þrátt fyrir vangaveltur um framtíð Sergei „Ax1Le“ Rykhtorov er hann enn skráður í BetBoom. BetBoom hefur ekki náð tilætluðum árangri í helstu mótum á þessu ári og er ljóst að liðsstjórnin leitar leiða til að snúa við blaðinu. Meðal þeirra sem áfram halda sæti í liðinu eru Boombl4, Magnojez og s1ren, en zorte er nú formlega kominn á bekkinn. Lineup hjá BetBoom: Pavel…

Lesa meira

KRAFTON mun mæta með veglega og metnaðarfulla dagskrá á Gamescom 2025, sem fer fram í Köln í Þýskalandi dagana 20.–24. ágúst. Viðburðurinn fer fram í sýningarhöllinni Koelnmesse og hefur á undanförnum árum dregið að sér hundruð þúsunda gesta á staðnum og milljónir áhorfenda í streymi víða um heim. Í fréttatilkynningu frá KRAFTON, útgefanda hinna margverðlaunuðu leikja PUBG: BATTLEGROUNDS og inZOI, kemur fram að fyrirtækið hyggst kynna helstu leikjatitla sína, halda viðburði og bjóða gestum að taka þátt í fjölbreyttum upplifunum á Gamescom. Á sýningarsvæði Krafton í Hall 7 verður boðið upp á þrjá titla, PUBG: BATTLEGROUNDS, inZOI og PUBG: Blindspot,…

Lesa meira

Ozzy Osbourne er kominn aftur á stokk í Brütal Legend. Double Fine Studios hafa gefið út sérstakt viðbótarefni í tilefni minningar um þungarokkara allra þungarokkara, þar sem leikmenn fá að upplifa veröldina með nýjum eyrum og nýrri rödd. Í Ozzfest Tribute Pack, sem nú er aðgengilegur án endurgjalds fyrir alla eigendur Brütal Legend Remastered, eru bætt við nýjum hljóðum, aukahlutum og myndrænum tilvísunum í feril Ozzy. Þar má meðal annars heyra nýtt talsett efni, auk þess sem Ozzfest hátíðin fær sinn sess í heimi leiksins, líkt og hún gerði í raunveruleikanum þegar hún var stofnuð árið 1996 af Ozzy og…

Lesa meira

Það er allt að fara í gang í Battlefield 6, nýjasta leiknum í stórleikjaröð DICE og EA. Trailerinn sem féll á netið í júlí gefur tóninn: nýr stríðsher, Pax Armata, hefur tekið völdin yfir hluta heimsins og öll jafnvægi eru farin út um gluggann. Nú rísa löndin gegn hvert öðru í átökum sem teygja sig frá miðri Evrópu til stranda Gíbraltar og þú ert mitt í þessu öllu saman. Það er ljóst að markaðssetning Battlefield 6 er tekin á næsta level og það sést vel á stöðugum „drops“ og vísbendingum á samfélagsmiðlum. Þú ert sendur inn í lönd eins og…

Lesa meira

Rafíþróttarisinn PGL hefur opinberað að næsta stórmót þeirra, PGL Astana 2026, verður með verðlaunapott upp á 1,6 milljónir Bandaríkjadala, sem samsvarar um það bil 224 milljónum íslenskra króna. Þetta er stærsti verðlaunapottur í sögu Counter-Strike 2 (CS2) frá því að leikurinn tók við af CS:GO. Mótið og fyrirkomulag PGL Astana 2026 fer fram dagana 7.–18. maí 2026 í Barys Arena í höfuðborg Kasakstan, Astana. Um er að ræða fyrsta stórmótið í CS2 sem haldið er í landinu, og marka þessi áform mikilvægt skref í alþjóðavæðingu CS2-senunnar. Keppnin verður skipulögð með eftirfarandi hætti: Opið undankeppniskerfi verður haldið 14.–17. febrúar 2026. Tvæt…

Lesa meira

Umdeild bannalda í skotleiknum Marvel Rivals hefur vakið hörð viðbrögð úr leikjasamfélaginu eftir að fjölmargir leikmenn voru tímabundið útilokaðir frá leiknum, að því er virðist fyrir gagnrýni og pólitíska skírskotun fremur en óæskilega hegðun í leik. Uppþotið hófst þegar vinsæll streamer, sem gengur undir nafninu Panda, var bannaður í fjóra daga eftir að hafa birt myndband þar sem hann notar setninguna „Taiwan number one“. Þessi setning hefur lengi verið notuð í háðsglensi gagnvart kínverskum netnotendum og tengist kröfum um sjálfstæði Taívans, sem kínversk stjórnvöld líta á sem árásargjarna áróður. Í frétt á VideoGamer kemur fram að í kjölfarið stigu aðrir…

Lesa meira

CageConnor hefur hafið nýja þáttaröð á YouTube þar sem hann leiðir áhorfendur inn í gjörbreyttan heim Subnautica. Með viðbótum sem breyta öllum forsendum leiksins hefur Subnautica fengið nýtt líf, framandi, drungalegt og ómótstæðilegt í senn. Í fyrsta þætti hrapar aðalpersónan niður á ókunnuga hafheima fjarlægrar plánetu. En eitthvað er öðruvísi. Heimurinn sem áður var vel þekktur virðist hafa verið endurforritaður. „The world’s been rewritten… and it’s watching,“ segir CageConnor á áhrifaríkan hátt við upphaf þáttarins og undirstrikar þar með þá ógn og spennu sem svífur yfir vötnum í þessari útgáfu leiksins. Viðbæturnar sem nýta má í gegnum mod eru fjölbreyttar:…

Lesa meira

NCFC eSports hélt glæsilegt sumarafmælismót í PUBG: Battlegrounds í gærkvöldi, þar sem vinir og félagar komu saman til að heiðra afmælisdrenginn Alex „Exik0n“. Mótið fór fram sunnudagskvöldið 20. júlí og hófst stundvíslega klukkan 20:00. Þátttakan var góð, enda var mótið opið öllum og aðgangur ókeypis. Ellefu lið skráðu sig til leiks og var andrúmsloftið létt, en keppnin engu að síður hörð og spennandi allt til loka. Enginn komst með tærnar þar sem Omni hafði hælana Það var lið Omni sem stóð uppi sem sigurvegari að loknum átökum kvöldsin.  Í öðru sæti hafnaði NLG BLUE og í þriðja sæti endaði lið…

Lesa meira

Arc Games hefur staðfest að hinn langþráði tölvuleikur Frosthaven, byggður á samnefndu og margverðlaunuðu borðspili frá Cephalofair Games, komi út í prufuútgáfu á PC (Steam og Epic Games Store) þann 31. júlí. Leikurinn verður fáanlegur á 38,99 evrur og verður jafnframt hægt að kaupa sérstakan pakka með bæði Frosthaven og Gloomhaven Digital. Frá borðspili yfir í tölvuleikjaupplifun Frosthaven er RPG leikur og er þróaður af búlgarska leikjaframleiðandanum Snapshot Games undir stjórn Julian Gollop, höfunda upprunalegu X-COM-leikjanna. Höfundur borðspilsins sjálfs, Isaac Childres, kemur að þróuninni sem ráðgjafi. Leikurinn býður upp á samstarf, þar sem bæði nýliðar og þaulreyndir leikmenn geta notið…

Lesa meira