Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Í gær fór fram viðureign á milli Íslands og Noregs þar sem Warmonkeys kepptu fyrir hönd Íslands í sjöttu umferð online mótsins King of Nordic í Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO). Því miður tapaði Ísland og er Íslenska CS:GO samfélagið byrjað að örvænta, en Ísland tapaði t.a.m. öllum leikjum á seinasta tímabili. Warmonkeys eru enn í smá basli með að fínpússa liðið eftir að nýr leikmaður kom í lineup þeirra hann th0rsteinnf. Þetta höfðu Warmonkeys að segja um leikinn: „Góður leikur við Norðmenn sem þeir tóku í 2x framlengingu. Vissulega svekkjandi að tapa þessum blessaða KoN leik enn einu sinni, en…
Leikjabræður er duglegir að birta myndbönd á jútúb rásinni sinni og eru komnir með sjö myndbönd þegar þetta er skrifað. Bakkabræðurnir eru klárlega að ná betri tökum á leiknum Tom Clancy’s Rainbow Six: Siege eins og sjá má á meðfylgjandi myndböndum, en að sjálfsögðu er stutt í vandræðaleg móment. Á meðal gesta hjá Leikjabræðrum er drottningin og Íslenski twitch streamer-inn LisaTheNightOwl og Nasarex. Sjón er sögu ríkari: https://www.youtube.com/watch?v=km8fGenly90 https://www.youtube.com/watch?v=oxMGYZ8iKJg Fleira tengt efni: [feed url=“https://esports.is/tag/leikjabraedur/feed/“ number=“4″ ] Mynd: Skjáskot úr myndbandi
Einherjar og Team Hafficool kepptu til úrslita í Íslandsmeistaramótinu í tölvuleiknum Overwatch fyrir fullum sal í Kaldalón í Hörpunni í dag. Skrunið niður til að horfa á myndband. Það voru Einherjar sem höfðu betur og eru þar með orðnir Íslandsmeistarar í Overwatch. Úrslitin voru sýnd í beinni útsendingu á Twitch og voru um 2000 manns sem horfðu í einu á æsispennandi viðureign Einherja og Team Hafficool. Góð þátttaka var í keppnina en 50 lið voru skráð til leiks eða um 300 Overwatch spilarar og hefur mótið gengið mjög vel og eiga mótshaldara þúsund þakkir fyrir vel heppnað mót. Undanúrslitin voru…
Skráning er hafin í Vordeild Tuddans og verður að þessu sinni boðið upp á keppni í CS:GO, Rocket League og Overwatch. Nánari upplýsingar má finna hér. Bein slóð á skráningarsíðu hér.
Í dag keppa Einherjar og Team Hafficool til úrslita á Íslandsmótinu í Overwatch og hefst sá viðburður klukkan 13:00 í Kaldalón í Hörpu samhliða UTMessunni. Einnig er hægt að fylgjast með úrslitunum hér á Twitch síðunni. Mynd: Valur Heiðar Sævarsson
Býr í þér fréttamaður? Hefurðu áhuga á jafnt sem innlendum og erlendum tölvuleikjafréttum? Sendu inn umsókn, segðu frá því hver þú ert, hvað þú hefur gert, hvert áhugasviðið er. Skilyrði sem þarf að uppfylla: Viðkomandi má ekki: Reykja Drekka áfengi Taka í vörina Ekkert DoDo Engar skemmtanir um helgar Þarf að hætta í skóla eða vinnu og spila tölvuleiki og skrifa fréttir 24/7 Þarf að kaupa allra nýjasta tölvubúnað, ath skjár minni en 43″ er ekki í boði Senda mynd af settinu til staðfestingar (þó ekki af klósettinu) . . . . . . . . Nei, grín, skilyrði er…
Tölvuleikir eru meira spennandi þegar það er meira í húfi, er það ekki? Skrunið niður til að horfa á myndband. Meðlimir og eigendur eSports samfélagsins Epulze höfðu samband við esports.is til að athuga hvort hægt yrði að vekja athygli á þeirra samfélagi og það var hið minnsta mál að gera það. Bannað yngri en 18 ára Epulze er stranglega bannað yngri en 18 ára og eru yngri spilarar vinsamlegast beðnir um að hætta að lesa hér og fara aftur að spila sinn leik. Vil byrja á því að segja að eSports.is tekur enga ábyrgð ef þú lesandi góður hefur áhuga…
Lanmótið Tuddinn var haldið nú um helgina, en mótið fór fram í íþróttahúsi Digranes í Kópavogi. Keppt var í leiknum Counter-Strike: Global Offensive og voru 28 lið skráð til leiks og hófst keppnin á föstudagskvöldið s.l. og lauk í gærkvöldi. Úrslit urðu eftirfarandi: 1. sæti seven 2. sæti warmonkeys 3. sæti malefiq Seven – Lineup denos Tight spike clvR detinate WarMonkeys – Lineup capping kruzer pTER ofvirkur aronolafs Malefiq – Lineup RonWEASLy sNkY allee** b0ndiYYY BDSM_WH*REXxX Hægt er að horfa á úrslitaleikinn með því að smella hér sem hefst um 7:30: Skoðanakönnun í facebook grúppu Íslenska CS:GO samfélagsins vakti athygli…
Leikjabræður eru búnir að gefa út sitt þriðja myndband og að sjálfsögðu er leikurinn Rainbow Six Siege spilaður. Bullið og grínið er á sínum stað eins og þeim einum er lagið og svo kemur skellurinn .. sjálf Yoko Ono birtist í myndbandinu með aukatvist, sjón er sögu ríkari. Skrunið niður til að horfa á vídeó. Leikjabræðurnir Anton, Bibbi, Brjánsi & Krissi fá gesti en það eru harðjaxlarnir Decay & DabbiKay. Vídeó https://www.youtube.com/watch?v=BUWo2h3IaR0 Myndir: skjáskot úr myndbandi
Leikjabræður eru búnir að gefa út sitt annað myndband í leiknum Rainbow Six Siege. Skrunið niður til að horfa á myndband. Þeir sem koma fram í myndbandinu eru Anton, Bibba, Brjánsi, Elmar og Krissi en gestir þeirra leikjabræðra eru þeir Haffi (NatsuFireMaster) Máni (Moonboy) & Óli (Gintamier). Vídeó Það falla mörg gullkorn af vörum leikjabræðra í þessari snilldar klippu og eins og áður segir, þá er orðalag ekki við hæfi barna: https://www.youtube.com/watch?v=U6l1jmKewDc Smellið læk á facebook síðu leikjabræðra hér. Myndir: skjáskot úr myndbandi
