Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

  Þá er allt að hefjast í Overwatch online mótinu, en fyrstu leikir eru í kvöld 7. september klukkan 19:00 (CET).  Hér er um að ræða Norðurlandamót sem haldið er af King of Nordic og það lið sem sigrar í kvöld kemst í mótið þar sem tæp 600 þúsund er í verðlaun fyrir fyrsta sætið (5000 Bandaríkjadali). Þau lið sem keppa eru: Ísland: Alliance Finnbjörn „Finnsi“ Jónasson Sindri „Sylvanas“ Kjartansson Ingi „Ingi“ Óskarsson Óttar „Theory“ Halldórsson Jökull „Kaldi“ Halldórsson Arnar „ArnarThor“ Benediktsson Svíþjóð: Bringos Bringos Jonathan „Liddano“ Lidgren Jessie „eure“ Eurenius Felix „Zartaz“ Mathiasson Henrik „NuttyB“ Romby Ray „Shadez“ Chan…

Lesa meira

Við minnum á að skráning er í fullum gangi í haustdeild Tuddans, en boðið verður upp á keppni í þremur leikjum að þessu sinni: Counter-Strike: Global Offensive Overwatch Rocket League Keppnisfyrirkomulag í Counter-Strike: GO mun taka töluverðum stakkaskiptum, sú ákvörðun var tekin að fækka bæði liðum í Úrvalsdeild og fyrstu deild, í Úrvalsdeildinni verða 8 lið og í fyrstu deild 16 lið, að því er fram kemur á 1337.is. Ef lið óska eftir því að komast í úrvals eða fyrstu deild þá er hægt að sækja um það sérstaklega, og fara þau lið í qualifier til að ákvarða hvert þau…

Lesa meira

Legion, nýjasti aukapakkinn fyrir fjölspilunarleikinn World of Warcraft, er fínasta skemmtun. Meira er að gera en í hinum nýliðna Warlords of Draenor en eitt helsta umkvörtunarefni spilara síðasta aukapakka var skortur á efni. Flakkaðu um nýja heimsálfu. Skoðaðu fornar rústir og slátraðu djöflum, ófreskjum og saklausum dýrum í tonnavís. Komdu karakternum þínum upp um nokkur level og nældu þér í alls konar brynjur og vopn. Svona mætti lýsa hverjum einasta aukapakka fyrir sögufræga fjölspilunarleikinn World of Warcraft og það gildir sömuleiðis um Legion, skrifar Þórgnýr Einar Albertsson stórgóða grein í Fréttablaðinu um aukapakkann Legion í World of Warcraft. Nánari umfjöllun…

Lesa meira

Eins og greint hefur verið frá, þá hóf eSports.is samstarf við King of Nordic og G2A.  Norræn esports mótaröð þar sem þjóðirnar Finnland, Svíþjóð, Ísland, Danmörk og Noregur keppa. Fyrsta online mótið hefst 7. september næstkomandi í leiknum Overwatch, en tímaplanið er eftirfarandi: Undankeppni:   7., 14., 21. og 28. september. Umspil (Play-Off): 5. október. Úrslit: föstudaginn 7. október. Lið sem nú þegar hafa verið valið fyrir umspil eru: Reunited, Rouge, Luminosity, MisfitsGG, Dignitas, OWKings, EnvyUs, Melty eSport-Club. Nánar á King of Nordic – Overwatch Cup eða senda á netfangið [email protected] (TurboDrake)  Overwatch reglur Mynd: playoverwatch.com

Lesa meira

Því miður komst Ísland ekki upp úr riðlakeppninni í Heimsmeistaramótinu í Counter-Strike: Global Offensive. Íslenska CS:GO landsliðið keppti á móti Tyrklandi og því miður fór sem fór með sigri Tyrklands og þar með datt Ísland úr keppni ásamt Eistlendingum. Átta efstu liðin mætast á lanmóti í Belgrad höfuðborg Serbíu eftir mánuð þar sem sigurliðið fær tæp 12 milljónir að launum. Mynd: E-Frag.net

Lesa meira

Ísland tapaði gegn Belgíu í gær 16-10 í heimsmeistarakeppninni í leiknum Counter-Strike: Global Offensive (CS: GO).  Liðið mætir Tyrklandi á morgun fimmtudaginn 1. september og núna þarf sigur til að eiga möguleika á að komast upp úr riðlinum í heimsmeistarakeppninni. Leikurinn fer fram klukkan 14:00 og verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni í Leikjadeildinni hjá Tölvutek, einnig verður hægt að horfa á beina útsendingu á efragtv með því að smella hér. Facebook event:  Ísland vs Tyrkland Myndir: skjáskot úr beinu útsendingu í viðureign Íslands og Belgíu í gær.

Lesa meira

Íslenska landsliðið í Counter-Strike spilar nú í heimsmeistarakeppninni í Counter-Strike GO, en liðið sigraði Slóveníu í síðustu viku. Landsliðið er í B riðli ásamt Belgíu, Rússlandi og Tyrklandi. Landsliðið mun keppa í Gaming Cafe aðstöðunni í Leikjadeild Tölvutek í Hallarmúla 2, en Tölvutek er styrktaraðili Íslenska landsliðsins.  Hægt verður að fylgjast með landsliðinu að keppa á móti Belgíu í dag þriðjudaginn 30. ágúst á milli 15:00 – 17:00. Hægt er að horfa á leikinn með því að smella hér og byrjar hann klukkan 15:00. Áfram Ísland! Mynd: facebook / Tölvutek

Lesa meira

TurboDrake sem spilaði með Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO) liðinu Alliance á lanmótinu HRingurinn var dreginn sérstaklega út hjá Tölvutek og fékk að launum Ducky Shine 5 lyklaborð að andvirði 34.990 kr. TurboDrake er lítið fyrir breytingar og er ánægður með sitt sett og hefur því ákveðið að gefa lyklaborðið til Íslenska landsliðsins í CS:GO og er það komið í sölu til styrktar landsliðsins. Að auki mun Íslenski landsliðshópurinn gefa eiginhandaráritun á bakhlið lyklaborðsins og byrjar uppboðið í 25.000 krónur og mun ljúka á þriðjudaginn 30. ágúst klukkan 14:00, þ.e. klukkutíma fyrir fyrsta leikinn í group stage hjá landsliðinu. Þeir sem…

Lesa meira

Eitt stærsta lanmótið á Íslandi HRingurinn var haldið í byrjun ágúst í Háskóla Reykjavíkur.  Til gamans má geta að HRingurinn var 10 ára í ár og frábært að sjá svona virt lanmót endast svona lengi og vænta má um ókomin ár. Keppt var í tölvuleikjunum Rocket League, Hearthstone, Overwatch, League of Legends og Counter-Strike: Global Offensive (CS: GO) og var virkilega góð skráning í alla leikina. Úrslitin urðu á þessa leið: Rocket League Rocket League 1. sæti – Daníel Lassen og Árni Ingvi Ármansson 2. sæti – Giant slayers: Skari og Kölski 3. sæti – Þorsteinn Atli Kristjánsson og Theodor…

Lesa meira

Skema auglýsir eftir þjálfurum til að sinna skapandi tæknimenntun barna, unglinga og kennara.  Umsóknir sendist rafrænt á [email protected]. Umsóknir berist eigi síðar en 30. ágúst 2016. Allar umsóknir eru trúnaðarmál. Hefur þú þessa eiginleika? Sjálfstæð vinnubrögð & Drifkraftur Samskiptahæfni Aðlögunarhæfni og Útsjónasemi Rík Þjónustulund Tæknilæsi & Tækniþekking Reynslu af kennslu og/eða vinnu með börnum Hreint sakavottorð 20 ára eða eldri APD Þjálfari Skema leitar að öflugum kennurum með reynslu í notkun á iPad í kennslu til að sækja frekari þjálfun undir merkjum Apple og eiga möguleika á að fá APD (Apple Professional Development) vottun. Þeir kennarar sem hljóta vottunina fá…

Lesa meira