Nýjar fréttir
Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Notandinn Sinx á spjallinu tilkynnir um að hann er búinn að setja upp íslenskan Counter Strike:Source server með hefbundnu möppum og er að vinna í því að setja inn Rats map og fleira. Fyrir þá sem vilja nánari upplýsingar og eins með óskir um maplist geta smellt hér.
Íslenska fragmovie „How do you like Iceland?“ er ein af þeim bestu myndböndum sem gerð voru þegar Íslenska Call of Duty 4 samfélagið var upp á sitt besta en þar voru þeir félagar Lennzy og Veenz sem náðu að fanga þessi glæsileg tilþrif hjá CoD4 spilurum. Spilarar í myndbandinu eru Joseph, Krissi, Rythm, Knudsen, Veenz, Techh, Lennzy, Drezi, Abattage svo eitthvað sé nefnt. Sjón er sögu ríkari:
Íslenski Starcraft 2 (SC2) spilarinn Kaldi keppti nú á DreamHack lanmótinu sem haldið var síðastliðna helgi dagana 15. – 17 júní 2013 í Jönköping í Svíþjóð. Rúmlega 130 SC2 spilarar kepptu og lenti Kaldi í 33. – 48. sæti með Naniwa, Feast, Gowser, Lucky og fleiri góðum spilurum. Kaldi er meðlimur í tölvuleikjasamtökunum Infused en þau eru talin ein virtustu samtök í tölvuleikjaheiminum og á vegum þeirra býr nú Kaldi í Sviss þar sem hann æfir á fullu við Starcraft 2 spilun í progaming húsi MyInsanity í júní, júlí og ágúst í litlum bæ, 10 mínútur fyrir utan Bern með…
Í eftirfarandi leikjum verður keppt á Lanmóti HRingsins sem haldið er á vegum Tvíundar í Háskólanum í Reykjavík dagana 19. til 21. júlí 2013, en þeir eru League of legends, Starcraft 2, DotA 2 og Counter-Strike: Global Offensive. Mynd úr safni.
Íslenska Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO) liðið almost extreme (ax) keppir nú í online mótinu ESEA Open og gengur mjög vel þar og vermir nú 14. sæti af 109 liðum með fimm sigra og eitt tap. Ax keppti við liðið deadly as goats og ekki var það flawless leikur, en ax var í miklu basli með mótherjana sína sem voru með 4 keppendur þegar ax var með 5, en engu að síður náði ax að merja fram sigur 16-7. Næsti leikur ax er áætlaður 21. júní á móti liðinu comando Elite. Hér að neðan er hægt að horfa á upptöku af…
Meðfylgjandi má sjá glæsilegt myndband sem sýnir allra bestu lið í heimi keppa í Counter-Strike: Global Offensive á lanmótinu Copenhagen Games 2013 sem endaði með sigri sænska liðsins NiP (Ninjas in Pyjamas) og fengu þeir í verðlaun rúmlega 2.7 milljónir. Einnig var keppt meðal annars í leikjunum League of Legends, ShootMania, FIFA 13. Í myndbandinu má sjá liðin VeryGames, fnatic, Virtus.pro, mousesports svo eitthvað sé nefnt, sjón er sögu ríkari: Lineup hjá NiP: Christopher ‘GeT_RiGhT’ Alesund Patrik ‘f0rest’ Lindberg Richard ‘Xizt’ Landström Robin ‘Fifflaren’ Johansson Adam ‘friberg’ Friberg Mynd: Skjáskot af myndbandi
Fyrrum forfallinn og nú aðeins minna fallinn World of Tanks spilari sýnir myndband á facebook grúppu Íslenska WoT Samfélagsins sem inniheldur eitt óheppnisskot sem hann framkvæmdi þegar hann skaut niður félaga (bein tenging á skotið, 3:40) sinn í stað óvinar. Langt myndband eða rúmar 14 mínútur, en engu að síður gaman að horfa á gameplay-ið í leiknum:
Jökull „Kaldi“ Jóhannsson sigraði fyrsta StarCraft 2 Heart of the Swarm mótið árið 2013, en hann spilaði við Bjarka „MangoBaldwin“ Garðarsson og sigraði 3-1. „Það er klárlega eldiviður í annað mót þannig fólk þarf ekki að bíða lengi eftir næsta móti“, sagði Þórir „TurboD“ Viðarsson Skipuleggjandi mótsins í samtali við eSports.is sem vill einnig koma á framfæri fyrir hönd GEGT1337 innilegar hamingjuóskir með sigurinn og þakkir til allra fyrir þátttökuna. Mynd: Aðsend
Nú er hægt að skrá sig á fréttabréfakerfi hér á eSports.is á einfaldan hátt. Til að tryggja að lesendur vilji skrá sig á fréttabréfi þarf sá sami að staðfesta skráninguna með því að smella á tengilinn sem sendur er á tölvupósti til viðkomanda. Fréttayfirlit sent út einu sinni í viku Með því að skrá sig geta lesendur eSports.is fylgst vel með fréttaflutningi hér á vefnum, en sent verður út einu sinni í viku fréttayfirlit á þeim fréttum sem hafa birst í þeirri viku sem var að líða. Við látum vita um lanmót eða online mót sem framundan er, facebook leikir…
Settur hefur verið upp Garrys Mod RP Server hjá Nova Iceland og hvetjum við alla að kíkja á serverinn á eftirfarandi ip: 50.31.65.125:27015 Mynd: Skjáskot eftir leik fréttamanns á nýja Garrys Mod servernum.
