Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Íslenski Counter Strike:Source spilarinn kruzer altnickaði sem „DERNETY.ice-Stormrise“ í mix-clani í scrim-i á móti íslenska claninu dsh og í meðfylgjandi myndbandi má sjá kruzer pakka liðinu saman. Meðlimir í dsh voru nú ekki að átta sig á að allir á servernum heyrði í þeim að tala sín á milli, þar sem þeir ásaka kruzer um að svindla, hata b-hop hans og margt fleira.  Í say spjölluðu liðin saman og þar voru einnig ásakanir, „þetta er hakk“, „Hakk er hollt“ „nei það er unnin kjötvara“, á meðan að kruzer rúllar yfir dsh clani, sjón er sögu ríkari:  Mynd: Skjáskot af myndbandi

Lesa meira

Tölvuleikjasamtökin Infused voru stofnuð í desember 2005 og á þessu 8 ára tímabili þ.e. fram til dagsins í dag hafa samtökin náð gríðarlegum góðum árangri og tekið þátt í fjölmörgum mótum og eru talin ein virtustu samtök í tölvuleikjaheiminum. Infused sér um að halda utan um nokkur lið t.a.m. sem keppa í Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO), League of Legends (LoL), ShootMania og Starcraft 2. Það var síðan í mars s.l. sem að vel þekkti íslenski Starcraft 2 spilarinn Kaldi sem slóst í hópinn með Infused, en við forvitnuðumst aðeins hvernig hefur gengið hjá Kalda og hvað framundan er hjá Infused.…

Lesa meira

Counter Strike:Source serverarnir hjá Cobalt eru þeir einu sem virka hér á íslandi og eru með nýjustu uppfærslurnar.  Í gærkvöldi komust færri að en vildu og var mikið fjör í herbúðum Cobalt, en þetta kemur fram á vef þeirra Cobalt.is. Info um serverana hér: Public FF off – 31.209.141.212:27025 Public FF on  – 31.209.141.212:27015 Það er Css spilarinn FAXE og einn af stofnendum Cobalt sem á allann heiðurinn að serverarnir eru virkir, mörgum til mikillar ánægju. Simnet serverarnir hafa ekki komið upp í langan tíma, en Kruzer sagði í samtali við fréttamann eSports.is að þeir kæmu upp, en  það væri…

Lesa meira

Í gær var birt þær breytingar og uppfærslur sem væntanlegar eru í leiknum World of Tanks í útgáfu 8.6.  Hér er um að ræða ansi miklar breytingar sem að Michael Jivetc hönnuður leiksins hefur gert. „Ég held þetta verði gott. Þetta jafnar út leikinn, minna random factor þó það sé enn til staðar (það er nauðsynlegt svo leikurinn verði lifandi og skemmtilegur). Skotin verða s.s. algjörlega ráðin af hæfileikum einstaklingsins til að hitta á rétta staði“, sagði einn meðlimur í fb grúppu Íslenska WoT Samfélagsins. Mynd: worldoftanks.com

Lesa meira

Íslenska battlefield 3 liðið catalyst Gaming keppa nú í Spring Cup mótinu og eru komnir með tvo sigra og eitt tap sem var gegn HMC, en þessi árangur tryggði þeim annað sætið í sínum riðli og eru þar af leiðandi komnir í fjórðungsúrslit. CG tekur einnig þátt í fimmta keppnistímabili hjá „NordicLeague“, en þar spila þeir í fyrstu deild og eru komnir í annað sætið á því móti. Glæsilegur árangur hjá flottu liði.  Við hjá eSports.is höldum áfram að fjalla um velgengni þeirra í mótunum.

Lesa meira

Átta lið eru skráð í Counter Strike 1.6 online mótið sem ætti nú að teljast ansi gott miðað við allar þær raddir um að Íslenska Cs 1.6 samfélagið sé alveg dautt. Þau lið sem skráð eru: Eshock Dbsc KnV Helgast Tillar Magic GGWPBTEU Samskip Maplist: Inferno, Nuke, Train, Dust2, Tuscan og í fyrstu umferð verður mappið Nuke spilað. „Reynið að spila leikina sem fyrst svo þetta taki ekki forever“ segir einn af skipuleggjendum mótsins á facebook grúppunni #pcw.is og er mótið þar með byrjað.

Lesa meira

Nú fer að styttast í Eurovision-söngvakeppnina sem haldin er í Malmö í Svíþjóð en í kvöld fer fram fyrri undankeppni keppninnar og seinni á fimmtudaginn en þar mun framlag Íslands þetta árið „Ég á líf“ í flutningi Eyþórs Inga. Aðalkeppnin fer síðan fram laugardaginn 18. maí næstkomandi. Valgarður Uni hefur sett saman skemmtilegt myndband sem er þrívíddar animation af „Ég á líf“ í Minecraft útgáfu, en við það notaði hann forritin Blender 2.66 og Sony Vegas Pro 12. Sjón er sögu ríkari:

Lesa meira

Dýflissan, battlestation, stríðsvæðið mitt, 1337 pleisið og svona mætti lengi telja upp þau nöfn sem að tölvuleikjaspilarar nefna sína tölvuaðstöðu, en nýjasta æðið á facebook grúppu íslenska League of Legends samfélaginu er að birta myndir af sinni aðstöðu. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem birst hafa inn á facebook grúppu Íslenska LoL samfélagið: eSports.is hefur haldið nokkrar keppnir um bestu aðstöðuna sem hefur fengið fín viðbrögð hjá tölvuleikjaspilurum, spurning um að halda eitt slíkt mót á næstunni 🙂 Hver er besta aðstaðan í meðfylgjandi myndum að þínu mati?

Lesa meira

eSports barinn Meltdown sem hóf göngu sína í París í Frakklandi 3. maí 2012, hefur fengið gríðarlega góð viðbrögð og er nú þriðji Meltdown staðurinn í deiglunni í Bretlandi sem kemur til með að opna 1. júní næstkomandi og verður staðsettur við 342 Caledonian brautina í London.  Meltdown eSports staðirnir eru þá í þremur löndum, þ.e. í Frakklandi, Þýskalandi og nú í Bretlandi. Meltdown býður meðal annars upp á beina útsendingu, umfjöllun og lýsingu á völdum mótum sjö daga vikunnar, t.a.m. í tölvuleikjunum StarCraft2, League of Legends, DotA2 og Counter Strike. Heimild Meltdown á facebook: París Berlín London Ætli það…

Lesa meira

Alsjálfvirk bjórdæla og búnaður sem aðstoðar flutningabílstjóra við að bakka var á meðal þess sem verkfræðanemar Háskólans Íslands kynntu í gær, sem þeir hafa brasað við í námskeiðinu Tölvustýrður vélbúnaður. Ragnar, Sölvi, Valdimar og Starcraft 2 meistarinn Guðlaugur aka Gaulzi notuðu fjarstýrðan bíl til að útskýra hugmyndina eins og sjá má í fréttum Stöðvar 2 með því að smella hér. Og að sjálfsögðu var GEGT 1337 auglýst 🙂 Samsett mynd: Skjáskot af myndbandi.

Lesa meira