Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Íslenska leikjasamfélagið Icelandz Elitez Gaming (ICEZ) auglýsir nú á spjallinu eftir enn fleiri spilurum en samfélagið var stofnað árið 2010 og hefur síðan frá því stækkað ört og er núna eitt stærsta og virkasta leikjasamfélag á íslandi með rúmlega 200 meðlimi. „Enginn skíta komment takk, ef þú hefur ekkert gott að segja er best að þegja“, segir Hjorleifsson stjórnandi ICEZ á spjallinu, en þeir sem hafa áhuga á nánari upplýsingum er bent á að smella hér. Mynd: frá spjallinu.

Lesa meira

Íslenski Draazil hópurinn gaf út myndband í tilefni þess að Youtube rásin þeirra hefur náð 100 áskrifendur og er rásin núna komin með 123. Við í Draazil erum komnir með 100 subscribers á youtube rásinni og gerðum nýtt montage video í tilefni þess! Takk allir fyrir áhorfin til þessa! Draazil er hópur spilara sem halda úti hressandi og um leið sjokkerandi youtube rás og munið að smella like á facebook síðu þeirra hér. Mynd: Skjáskot úr myndbandi

Lesa meira

World of Warcraft guild-ið Pavo Ludo leitar nú að góðum spilurum til að geta haldið sem besta hóp fyrir hvert raid, en raid dagar eru miðvikudagar, fimmtudagar og sunnudagar.  Þeir sem hafa áhuga og vilja nánari upplýsingar eru bent á að smella hér. Logo af heimasíðu Pavo Ludo

Lesa meira

Undirbúningur fyrir Íslandsmótið í StarCraft 2 er í fullum gangi og eru stjórnendur búnir að ræða við nokkur fyrirtæki sem koma til með að aðstoða þá með mótið. Það er þó einn hængur á, þ.e. að finna finna húsnæði á viðráðanlegu verði fyrir 32 spilara, en þeir sem komu einhvern tímann á lanmótið í Kassagerðinni á sínum tíma ættu að vita hvernig húsnæði sem leitað er af.  Áætlað var að halda lanmótið í september en núna er það of lítill fyrirvari, svo stefnan er tekin á ný í október – nóvember. TurboDrake leitar af admin´s Einnig er leitað eftir mönnum…

Lesa meira

Icelandz Elitez Gaming (ICEZ) leitar nú af virkum íslenskum Battlefield 3 spilurum.  Leikjasamfélagið ICEZ var stofnað 10. mars árið 2010 og hefur síðan frá því stækkað ört er eitt stærsta og virkasta leikjasamfélag á íslandi með rúmlega 200 meðlimi. Ef þú hefur áhuga á nánari upplýsingum er ykkur bent á að smella hér, þar sem Hjorleifsson stjórnandi ICEZ fer vel yfir á spjallinu hvernig leikjasamfélagið virkar.

Lesa meira

Lanmótið HRingurinn sem haldið var á vegum Tvíundar í Háskólanum í Reykjavík lauk síðustu helgi en keppt var dagana 19. til 21. júlí.  Að sögn skipuleggjendur þá var um 200 spilarar sem kepptu og höguðu allir sér mjög fagmannlega. Úrslit urðu eftirfarandi: DotA 2 1.sæti – zeriouz buzinezz 2.sæti – Men of Mix 3.sæti – CycloneXXL – Heildarúrslit League of legends 1. sæti – LE37 2. sæti – Target Ban 3. sæti – Vælubíllinn – Heildarúrslit – Vídeó Starcraft 2 1. sæti – gaulzi 2. sæti -awesome 3. sæti -Ignite – Heildarúrslit – Vídeó Counter-Strike: Global Offensive 1. sæti -…

Lesa meira

Sænskir tölvuleikjaspilarar þurfa nú að kaupa leyfi af hinu opinbera fyrir allt að 600.000,- kr. til að fá að tengja tölvur sínar saman á svokölluðu LAN-móti. Þetta varð niðurstaða „happdrættisstofu“ Svía við túlkun á löggjöf um spilakassa sem sett var í fyrra af stjórnvöldum. Happdrættisstofan lítur svo á að tölvur sem notaðar eru til að spila tölvuleiki falli undir löggjöfina. „Samkvæmt lögunum eru þetta spilakassar, það er enginn munur þarna á,“ sagði Johann Röhr í samtali við tölvuleikjatímaritið T3. Tölvur sem eru tengdar saman í öðrum tilgangi en að spila tölvuleiki munu ekki þurfa að kaupa leyfi. Til viðbótar leyfinu…

Lesa meira

Nú er skráning hafin á stærsta lanmót ársins HRinginn og er hægt að nálgast allar upplýsingar á vefsíðunni þeirra hringurinn.net.  Skráningaformið er vel uppsett hjá þeim og ætti að ganga vel í alla staði fyrir liðin að skrá sig. Athugið að allir sem eru yngri en 18 ára þurfa að koma með leyfisbréf og er einnig hægt að nálgast það á vefnum hringurinn.net.

Lesa meira