Author: TurboDrake

Nú um helgina var ESL One New York að klárast og voru það Natus Vincere eða Navi sem sigruðu Virtus.Pro í úrslitum. Virtus.Pro byrjuðu að vinna fyrsta kort frekar sannfærandi í de_cbble 16-3 og hreinilega Navi ekki mættir til leiks. Næsta kort var de_train sem Navi völdu og var allt annar bragur á austurlenska stórveldinu, sá leikur endaði 16-8 fyrir Navi. Rimman endaði í frábærum leik í de_mirage þar sem Navi sigruðu 19-17 í framlengingu, það var hrikkalega gaman að sjá S1mple og GuardiaN brósa sínu breiðasta í lok leiks og verður gríðarlega gaman að sjá Navi í framtíðinni og auðvitað fáránlega gaman að…

Lesa meira

Um helgina var haldinn online qulifier hjá WSG Starladder og einungis voru lið frá Íslandi, Írlandi og Bretlandi boðið að taka þátt. Alls tóku þrjú Íslensk lið þátt NOVA eSports, VECA og Warmonkeys og gekk þeim misvel. NOVA eSports féllu út í fyrstu umferð á móti Bulldogs 11-16. VECA spiluðu á móti ODIN í fyrsta leik og unnu þá sannfærandi. Í annari umferð fengu þeir EPGG í train og að mínu mati leikur sem þeir áttu að klára. Warmonkeys sýndu það að íslensk lið eiga heima meðal þeirra bestu og unnu þeir IGW, VATIC og Bulldogs. Núna er komið að úrslitum og…

Lesa meira

Loksins, loksins! Eftir að hafa verið skildir úti í kuldanum fjögur tímabil í röð hafa King of Nordic loksins séð að Ísland er betri en þeir í nánast hvaða íþrótt sem er. Þrátt fyrir að vera aðeins rúmlega 300.000 þá höfum við kennt Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi hvernig á að spila handbolta, körfubolta og fótbolta… og núna er komið að CS:GO! Við hjá eSports.is munum halda utan um „one day cup“ bo1 vikulega, það lið sem vinnur fær að keppa í King of Nordic sem er haldið á föstudögum. Ef skráning fer ekki yfir átta liða þá gefum við…

Lesa meira

Skráning er hafin í haustdeild Tuddans, en boðið verður upp á keppni í þremur leikjum að þessu sinni: – Counter-Strike: Global Offensive – Overwatch – Rocket League Keppnisfyrirkomulag í Counter-Strike: GO mun taka töluverðum stakkaskiptum, sú ákvörðun var tekin að fækka bæði liðum í Úrvalsdeild og fyrstu deild, í Úrvalsdeildinni verða 8 lið og í fyrstu deild 16 lið. Vilji lið komast í úrvals eða fyrstu deild verður að sækja um það sérstaklega, og fara þau lið í qualifier til að ákvarða hvert þau fara. Aðeins 4 lið eiga fast sæti í úrvalsdeildinni en þau eru: – VECA – warMonkeys…

Lesa meira

Undanfarna daga höfum við hjá esports.is verið að ræða við King of Nordic um samstarf. Munum við sjá um að halda Íslenskar undankeppnir fyrir Counter-Strike Global-Offensive, League of Legends og Overwatch. Í hverri viku verða haldnar undankeppnir þar sem sigurliðið tekur þátt í útsláttarkeppni, þar sem bestu liðin frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð taka þátt í. Leikirnir verða sendir út á twitch síðu King of Nordic www.twitch.tv/kingofnordic og búast má við mikili umfjöllun í hvert sinn. Endilega fylgist með inná www.esports.is og www.kingofnordic.com

Lesa meira