
Á Skjálfta 2025 sýndu Apex Legends spilarar að það er hægt að sameina taktík og skothríð í einstaka stemmningu. Mótið fór fram í íþróttahúsi HK í Digranesi í Kópavogi, þar sem íslenska Apex-samfélagið hélt áfram í sínum hefðbundna dúr, með match-point + sigur kerfinu sem byggir á blöndu af taktískum aga og banvænu innsæi.
Streymi frá leikjunum fór fram á twitch.tv/gametiviis þar sem áhorfendur gátu fylgst með hverri hreyfingu í rauntíma. Keppt var bæði á staðnum og remote, en aðeins leikmenn með búsetu á Íslandi fengu að taka þátt. Í leikjunum var gefið stig fyrir bæði endanlegt sæti og kills, sem áhorfendur fylgdust spenntir með safnast upp.

F.v. Nikulás Nikulásson (BIGMAYNE), Josh Friðriksson (YEEMAYNE) og Steinþór Gunnar Ellertsson (Stescolado).
Sigurvegarar mótsins urðu liðsmenn B2B, sem tryggðu sér fyrsta sætið með sannkölluðum yfirburðum. Í liðinu spiluðu:
Josh Friðriksson / YEEMAYNE
Nikulás Nikulásson / BIGMAYNE
Steinþór Gunnar Ellertsson / Stescolado
B2B náði að sameina liðsfestu og persónuleg „clutch moment“ sem breyttu mótinu í þeirra leikvöll.

F.v. Melína Kolka skipuleggjandi, Nikulás Nikulásson (BIGMAYNE), Josh Friðriksson (YEEMAYNE), Steinþór Gunnar Ellertsson (Stescolado), Kristofer McCollough mótastjóri Apex Íslands og Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands.
Auk titilsins í Apex Legends náði Nikulás Nikulásson einnig að landa verðlaununum fyrir Besta setupið, þar sem dómnefnd horfði ekki aðeins á turninn sjálfan heldur líka á heildarásýnd tölvubúnaðarins, lyklaborð, skjá og mús. Það má því segja að BIGMAYNE hafi bæði hreinsað til á vígvellinum og hlotið viðurkenningu fyrir stílfengið „vopnabúr“ utan hans.
Myndir: Atli / Rafíþróttasamband Íslands



