Dagskráin fyrir undankeppni heimsmeistaramótsins í Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO) hefur verið birt:
- Ísland vs Hvíta-Rússland – 17. sept – 16:30.
- Ísland vs Svíþjóð – 28. sept – 20:30.
- Ísland vs Noreg – 29. sept – 16:30.
- Ísland vs Bosnía & Hersegóvína – 29. sept – 18:30.
- Ísland vs Belgía – 29. sept – 19:30.
Íslenska liðið keppir í D riðli og efstu 4 liðin komast áfram í 16 liða bo3 leik uppá sæti á mótið sjálft. Þ.e.a.s. fjórða sætið fær fyrsta sætið í öðrum riðli og svo koll af kolli.
Margir horfa á sænska liðið að það komi til með að hrella íslenska landsliðið, enda margir heimsþekktir spilarar í sænska liðinu.
Mynd: twc.e-frag.net