Á miðvikudaginn 5. júní hefst online mót hjá Íslenska StarCraft 2 samfélaginu og komast 32 spilarar í mótið og er fyrirkomulagið í skráningunni, fyrstur kemur fyrstur fær. Núna eru 18 spilarar skráðir í mótið og keppnisfyrirkomulag er bo3 eða sá sigrar sem er undan að vinna tvo leiki og undanúrslit og úrslit verða á fimmtudeginum 6. júní klukkan 20:00.
„Eins og staðan er núna er Kaldi líklegastur, en það eru samt margir spilarar á Íslandi sem geta unnið hann en það er einsog oft áður að menn eru hálf hræddir að takast á við aðra Íslendinga og vilja helst vera bara inn í skáp heima hjá sér og spila ladder og þora ekki út úr honum“, sagði turboDrake mótskipuleggjandi í samtali við eSports.is aðspurður um hverjir þrír eru sigurstranglegastir á mótinu.
„Annað og þriðja sætið getur farið þannig að ef Gaulzi tekur þátt þá ætti hann að geta verið í top 3, Zarahtra er mjög góður terran spilari ásamt ignite og nykur er náttúrulega með þetta í æðunum, sjálfur (innskot fréttamanns: turboDrake ) hef ég verið að æfa mig. En einsog ég segi þá vantar þarna t.d Chrobbus , dreza , smung , Baharott , Awesome , sazu , Sennap , shake , navi , kit , Haraldz , Mangobaldwin og Gaulzi , á góðum degi eru þetta allt menn sem geta unnið alla þá sem eru skráðir“.
„En það er alveg óþolandi að það væla allir um hvenær næsta mót verður og eru spenntir fyrir því, en svo þegar mótið nálgast ég þarf að draga þessa spilara í mótið með allskonar mútum og veseni“, sagði turboDrake að lokum.