Safnast hefur 55.000 krónur til styrktar strákana í Íslenska landsliðinu í Counter-Strike: Global Offensive. Allur ágóði fer í að leigja æfingarhúsnæði og eins aðstoða þá sem búa út á landi með ferðakostnað til Reykjavíkur svo fátt eitt sé nefnt.
Það er stórt verkefni framundan til að komast áfram og keppa í Serbíu helgina 8.-11. október og þurfa landsliðs strákarnir taka sér frí í vinnu/skóla fyrir æfingar ofl. en liðið mun keppa í undankeppni heimsmeistaramótsins og er fyrsti leikur 17. september næstkomandi.
Hvetjum alla að styrkja Íslenska landsliðið í CS:GO og er hægt að leggja inná reikning:
542-14-401636 og kennitala 240983-5839 (Þórir Viðarsson).
Munið að margt smátt gerir eitt stórt.