Eftir gríðarlega spennandi leik í seinustu viku tókst Warmonkeys ekki að sigra öflugt lið frá Noregi og endaði leikurinn á tvöfaldri framlengingu 22-19 fyrir Noreg.
EN NÚNA! Er komið að Tótavaktinni og spila þeir fyrir hönds Íslands í KING OF NORDIC í kvöld gegn öflugu liði frá Finnlandi. Liðið sem vinnur þá viðureign mætir annað hvort dönsku eða norsku liði en sigurvegarinn úr þeirri viðureign mætir Svíþjóð í úrslitaleik.
Endilega kíkið við á Twitch rásinni HÉR í kvöld og sýnið strákunum stuðning! Fyrir þá sem hafa áhuga á slíku þá er hægt að veðja á leikinn í gegnum HLTV.org, nánari upplýsingar um leikinn á HÉR.
Finnland hefur oftast tekist að sigra KING OF NORDIC og þurfa strákarnir okkar góðan stuðning í kvöld! ÁFRAM TÓTAVAKTIN!