Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Íslenska leikjafyrirtækið Porcelain Fortress tryggði sér á dögunum þriggja milljóna dollara fjárfestingu, eða um 410 milljóna króna, fyrir þróun á ótilkynntum leik fyrirtækisins. Á árinu hefur starfsmönnum fjölgað úr fjórum í fjórtán. Í fréttatilkynningu þess efnis sem að visir.is vekur athygli á, segir að á bak við fjárfestinguna séu Behold Ventures, Brunnur og Crowberry Capital. Porcelain Fortress hafi áður gefið út tölvuleikinn No Time to Relax sem selst hafi í um 350 þúsund eintökum. Söluhæsti mánuður leiksins hafi í ágúst á þessu ári, fimm árum eftir að leikurinn kom á markað. Leikurinn hafi verið þýddur á tíu tungumálum, þar á…
Eins og kunnugt er þá hefur íslenski tölvuleikjaframeiðandinn CCP boðað útgáfu á nýjum tölvuleik sem heitir EVE Frontier. CCP býður nú spilurum í lokaða leikprófun á leiknum í lok mánaðarins, en hægt er að sækja um hér. EVE Frontier stikla https://www.youtube.com/watch?v=Fgw44m1AdKc Mynd: evefrontier.com
Starborne Frontiers, tölvuleikur íslenska tölvuleikjaframleiðandans Solid Clouds er á leiðinni á Steam leikjaveituna. Áhugasamir geta sett Starborne: Frontiers á óskalista (e. wishlist) en leikurinn verður aðgengilegur fyrir notendur á veitunni í byrjun október. Fyrir þá sem þekkja ekki Steam, þá er Steam stærsta PC tölvuleikjaveita heims, með einn milljarð flettinga á dag og 132 milljónir virkra mánaðarlegra spilara. Að vera á Steam opnar nýjar dyr fyrir Starborne: Frontiers, og tryggir að leikurinn verður í boði fyrir breiðari hóp spilara sem eru ekki að spila í snjalltækjum. Þetta þýðir að Starborne: Frontiers verður aðgengilegur á bæði PC og í snjalltækjum. Sjá…
Íslenska PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) samfélagið er heldur betur að vakna til lífs síns með móthald, en online mót verður haldið sunnudaginn 22. september nææstkomandi. Síðasta mót var haldið 1. september s.l. þar sem Pungarnir hrepptu 1. sætið. Alls tóku 15 lið þátt í mótinu og er stefnan tekin á 18 lið á sunnudaginn nk. Sjá einnig: Pungarnir sigruðu í íslenska PUBG mótinu Fyrirkomulagið á skráningu liða er fyrstir koma fyrstir fá og er hægt að skrá liðið með því að smella hér. Fyrirkomulagið verður að öllu líkindum svipað og síðast, en verður hækkað í 6 kort. Hægt er að fylgjast…
Nörd Norðursins í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands ætlar að gefa tvo miða á tölvuleikjatónleika í Hörpu. Til að taka þátt er nóg að líka við þessa færslu á facebook og kommenta nafnið þeim tölvuleik sem inniheldur þína uppáhalds tölvuleikjatónlist. Um tónleikana Tölvuleikir eru gróskumikill og litskrúðugur geiri menningarlífsins þar sem tónlistin leikur oftar en ekki mikilvægt hlutverk. Hún á ríkan þátt í að skapa veröld þar sem leikurinn á sér stað, tónlistin mótar andrúmsloft leiksins og framvindu — og tilfinningalegt ástand spilarans um leið. Tónleikar þar sem sinfóníuhljómsveitir leika þekkta og vinsæla tónlist úr tölvuleikjum hafa notið mikilla vinsælda um…
16 landslið kepptu í meistarakeppninni PUBG Nations Cup 2024 en mótið var haldið í höfuðborg Suður-Kóreu, Seúl. Mótið hófst 6. september s.l. og lauk í gær 8. september og keppt var í leiknum PUBG – PlayerUnknown’s Battlegrounds. Landsliðið frá Kóreu hreppti 1. sætið, en liðið sigraði einnig mótið í fyrra, fjórða sætið árið 2022 og annað sætið árið 2019. Í öðru sæti var Bandaríkin en þar voru meðal annars spilrarnir og SQ heimsmeistarnir Shrimzy og Kickstart, en vinur þeirra SQ TGLNT keppti fyrir hönd Ástralíu. Í þriðja sæti varð landsliðið frá Taílandi. Þau lið sem tóku þátt voru: Argentína Ástralía…
Community kvöld í World of Warcraft: The War within fimmtudaginn 12. september klukkan 20:00 í Next Level Gaming í Egilshöll, „Community kvöld hjá okkur er fyrir alla sem spila World of Warcraft: The War Within! Markmið kvöldsins er að kynnast öðrum TWW spilurum, hafa gaman og miðla reynslu í okkar ástkæra tölvuleik. Kahoot byrjar klukkan 20:15 og eru veglegir vinningar í boði fyrir sigurvegara. Á kvöldið kostar 2.990 kr.- og inn í því er þátttaka í Kahoot + spilatími til lokunar 01:00. Happy hour á skít köldum á krana! 1090 kr.-“ segir í tilkynningu. Mynd: facebook / Next Level Gaming
Ný stikla fyrir bíómyndina Minecraft er komin út, en þar má sjá stórleikarana Jack Black og Jason Momoa í aðalhlutverkum. Í myndinni eru einnig Emma Myers („Wednesday“), Danielle Brooks („The Color Purple“), Sebastian Eugene Hansen („Just Mercy, „Lisey’s Story“) og Jennifer Coolidge. Jack Black er ekki alveg ókunnugur þegar kemur að leika í bíómyndum tengt leikjum, var í Jumanji bíómyndunum, raddaði Bowser í Super Mario Bros og Claptrap í Borderlands. Minecraft bíómyndin verður sýnd á næsta ári í apríl 2025. Horfið á stikluna hér að neðan, sjón er sögu ríkari: https://www.youtube.com/watch?v=zxGBZCshYCI Myndir: skjáskot úr myndbandi
60 ára gömul amma nýtur mikilla vinsælda á streymisveitum og samfélagsmiðlum þar sem hún streymir leikjaspilun sína ásamt annarri afþreyingu í beinni útsendingu, birtir myndbönd omfl. Hún kallar sig TacticalGramma og er með rúmlegta 400 þúsund fylgjendur á instagram, 51 þúsund áskrifendur á youtube, 93 þúsund á twitch og tæp 2 milljón fylgjendur á Tik tok, vel gert hjá þeirri gömlu. Hér að neðan eru nokkrar skemmtilegar klippur frá ömmunni: View this post on Instagram A post shared by TacticalGramma (@tacticalgramma) View this post on Instagram A post shared by TacticalGramma (@tacticalgramma) View this post…
Sony hefur ákveðið að taka Concord, nýjasta PlayStation-leikinn þeirra niður þann 6. september næstkomandi vegna slæmra sölu á leiknum. Hér er um að ræða fyrstu persónu skotleikurinn sem kom eingöngu á PS5 og PC 23. ágúst s.l. Concord náði einungis 697 spilara til að spila leikinn á sama tíma á Steam, sem er töluvert lægra en leikurinn Hringadróttinssögu: Gollum þegar hann kom út, en hann fékk á sínum tíma þann hræðilega titil, versti leikur ársins 2023. „Við höfum ákveðið að taka leikinn niður frá og með 6. september 2024 og kanna þá valkosti hvort hægt sé að ná betur til…
