Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Nú í ágúst fór fram lanmótið HRingurinn sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík. Keppt var í ýmsum leikjum og voru veglegir vinningar í boði. Úrslit voru eftirfarandi. Counter-Strike 2: Dusty League of Legends: Ghost emoji Shash ultimate doubles: Frosti Hlífar Ragnarsson og Erlingur Atli Pálmarsson Street Fighter 6: Óskar Snær Halldórsson Super Smash Bros Ultimate: Hlynur Snær Eysteinsson Tekken 8: Ronloyd Tryggvi Quiamco Leona Rivals of Aether: Skúli Bárðarson Guilty Gear Strive: Egill Askur Eineborg Með fylgja myndir frá lanmótinu: Myndir: facebook / HRingurinn
Í gær fór fram online mót í tölvuleiknum PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) 4 manna lið, í fyrstu persónu (FPS), og hófst mótið klukkan 20:00. Það hafa ekki verið mörg íslensk mót haldin í þessum tölvuleik og var almenn ánægja hjá keppendum sem greinilega vilja fleiri slík mót. Úrslit urðu þannig að PNGR hrepptu 1. sætið með 79 stig, Team Iceland lenti í öðru sæti með 62 stig og gömlu Oldies kallarnir í þriðja sætið með 62 stig. PNGR Jengah iamsyntex JonCjr maNiiic Team Iceland Gazzman2k namano_10 Alb_Mco Kongurinn8 Oldies: tveirmetrar Thorgeir Biker4life JellyFizhH Keppt var í kortunum Erangel, Miramar og Taigo. …
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, á tveggja áratuga starf að baki hjá fyrirtækinu, en lítur svo á að hann sé rétt að byrja. Þróun er hafin á nýjum tölvuleik, sem gerist í sama umhverfi og EVE Online, en þar sem fjármálakerfið verður byggt á bálkakeðjutækni. Peningarnir verða með öðrum orðum í sömu mynd og Bitcoin. „Við erum alveg á brúninni með því að vera of snemma að gera þetta,“ segir Hilmar Veigar í samtali við Ísland í dag. Stefnan er að hanna „nýja upplifun, byggða ofan á þessari bálkakeðjusýn sem gengur út á að kerfið sé ekki miðstýrt, heldur að…
Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds hefur lokið stórum þróunaráfanga fyrir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers, og er hann núna öllum aðgengilegur í snjalltækjaverslunum Apple og Google (e. app store). Hér er um að ræða fyrsta skrefið í útgáfuferli leiksins. Gögn um hegðun spilara verða notuð til að þróa og fínstilla leikinn svo að hann nái tilskildum viðmiðunarmörkum varðandi tekjur og spilatíma hvers notanda. Þegar þessum markmiðum hefur verið náð er næsti stóri áfangi félagsins endanleg útgáfa leiksins. Starborne Frontiers er hannaður fyrir snjalltæki en einnig verður hægt að spila hann í PC-útgáfu á næstu misserum. Um er að ræða hlutverkaleik þar…
Nýjasta útgáfan af Call of Duty leikjunum, Modern Warfare 2, hefur verið streymt yfir 5 milljóna klukkustunda á Twitch í nóvember, samkvæmt upplýsingum frá Statista. Leikurinn Valorant er í öðru sæti með 2,9 milljónir og til samanburðar þá hefur streymistundum á Overwatch 2 fækkað um 29% frá október til nóvember 2022. Mynd: callofduty.com
Solid Clouds býður hluthafa sína velkomna á fjárfestadag fimmtudaginn 1. desember næstkomandi kl. 17.00 í höfuðstöðvum félagsins. Þeir munu fá kynningu á nýjasta leik félagsins, Starborne Frontiers, og næstu skref varðandi útgáfu leiksins á fyrra hluta næsta árs. DAGSKRÁ 17:00 Gestir mæta 17:20 Móttökuávarp – stjórnarformaður 17:30 Leikurinn sýndur – tæknistjóri 17:40 Næstu skref – forstjóri 17:50 Léttar veitingar 19:00 Viðburðarlok Skrifstofa Solid Cloud er staðsett á Eiðistorgi 17, annarri hæð, 170 Seltjarnarnesi Takmarkað pláss er svo vinsamlegast smelltu hér til að skrá þig. „Það hefur verið virkilega gaman að sjá nýjasta leikinn okkar, Starborne Frontiers, taka á sig mynd síðustu mánuði.…
Það er komið að leiðarlokum hjá Ground Zero, sem stofnað var árið 2002, en lansetrið lokar fyrir fullt og allt í lok október, að því er fram kemur í tilkynningu frá G-Zero í dag. Í tilkynningu segir að G-Zero hafi gengið í gegnum ýmislegt frá því að lansetrið var fyrst opnað árið 2002, lifað af tvenna flutninga, eitt efnahagshrun og gengisfellingar. Það var svo Covid sem fór illa með fyrirtækið að nú er komið að leiðarlokum. „Án ykkar hefði þetta aldrei gengið svona lengi, þetta er búinn að vera, oft á tíðum, frábær tími og við eignast marga góða vini.“…
„Eftir mikla umhugsun þá hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér í áframhaldandi störf sem formaður RÍSÍ á komandi aðalfundi…“ Skrifar Ólafur Hrafn Steinarsson, formaður Rafíþróttasamtaka Íslands (RÍSÍ) í facebook færslu sem hann birti í dag. Lesa má tilkynninguna í heild sinni hér að neðan: Kæru vinir Undanfarnar vikur hef ég legið undir feld og hugsað um framtíð mína innan rafíþrótta. Síðustu 4 ár hafa verið mikill rússíbani sem hafa tekið mikið á en á sama tíma verið mjög gefandi en undanfarið ár hefur mig langað að gera einhverjar breytingar. Eftir mikla umhugsun þá hef ég ákveðið að…
Hluthafar Activision Blizzard hafa greitt atkvæði með því að samþykkja tillögu um að fyrirtækið skuli birta skýrslu þar sem m.a. er greint frá hvernig hægt er að koma í veg fyrir misnotkun, áreitni og mismunun á vinnustað Activision Blizzard. Fyrirtækið Activision hefur enn sem komið er aðeins sagt að það mun „íhuga vandlega“ hvort skýrslan verði birt. Skýrslan var unnin af ríkiseftirlitsmanni í New York, Thomas DiNapoli, en í skýrslunni kemur meðal annars fram heildarfjöldi kvartana um kynferðisofbeldi, áreitni eða mismunun sem fyrirtækið glímir við, en Activision stendur í fjölda málaferla sem tengjast þessum starfsháttum. Stjórn félagsins sendi hluthöfum í…
Þrátt fyrir heimsfaraldur birtust jákvæðar fréttir af fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum árið 2021. Ekki síst fyrirtækjum á sviði nýsköpunar. Eitt þeirra fyrirtækja sem sló um sig með jákvæðum fréttum er tölvuleikjafyrirtækið 1939 Games. Félagið lauk á árinu 5,3 milljón Bandaríkjadala hlutafjárútboði og var valið Vaxtarsproti ársins 2021 hjá Samtökum Iðnaðarins. Er Ísland kannski að eignast fleiri stór fyrirtæki eins og CCP? Ef svo er, er til mikils að vinna. Ekki aðeins starfa hjá CCP ríflega 300 manns heldur var velta fyrirtækisins tímabilið 2017-2020 um sex til átta milljarðar á ári. Næst á eftir í tekjum fyrir tölvuleik er 1939 Games. Fyrsti…
