Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Solid Clouds býður hluthafa sína velkomna á fjárfestadag fimmtudaginn 1. desember næstkomandi kl. 17.00 í höfuðstöðvum félagsins.  Þeir munu fá kynningu á nýjasta leik félagsins, Starborne Frontiers, og næstu skref varðandi útgáfu leiksins á fyrra hluta næsta árs. DAGSKRÁ 17:00 Gestir mæta 17:20 Móttökuávarp – stjórnarformaður 17:30 Leikurinn sýndur – tæknistjóri 17:40 Næstu skref – forstjóri 17:50 Léttar veitingar 19:00 Viðburðarlok Skrifstofa Solid Cloud er staðsett á Eiðistorgi 17, annarri hæð, 170 Seltjarnarnesi Takmarkað pláss er svo vinsamlegast smelltu hér til að skrá þig. „Það hefur verið virkilega gaman að sjá nýjasta leikinn okkar, Starborne Frontiers, taka á sig mynd síðustu mánuði.…

Lesa meira

Það er komið að leiðarlokum hjá Ground Zero, sem stofnað var árið 2002, en lansetrið lokar fyrir fullt og allt í lok október, að því er fram kemur í tilkynningu frá G-Zero í dag. Í tilkynningu segir að G-Zero hafi gengið í gegnum ýmislegt frá því að lansetrið var fyrst opnað árið 2002, lifað af tvenna flutninga, eitt efnahagshrun og gengisfellingar. Það var svo Covid sem fór illa með fyrirtækið að nú er komið að leiðarlokum. „Án ykkar hefði þetta aldrei gengið svona lengi, þetta er búinn að vera, oft á tíðum, frábær tími og við eignast marga góða vini.“…

Lesa meira

„Eftir mikla umhugsun þá hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér í áframhaldandi störf sem formaður RÍSÍ á komandi aðalfundi…“ Skrifar Ólafur Hrafn Steinarsson, formaður Rafíþróttasamtaka Íslands (RÍSÍ) í facebook færslu sem hann birti í dag. Lesa má tilkynninguna í heild sinni hér að neðan: Kæru vinir Undanfarnar vikur hef ég legið undir feld og hugsað um framtíð mína innan rafíþrótta. Síðustu 4 ár hafa verið mikill rússíbani sem hafa tekið mikið á en á sama tíma verið mjög gefandi en undanfarið ár hefur mig langað að gera einhverjar breytingar. Eftir mikla umhugsun þá hef ég ákveðið að…

Lesa meira

Hluthafar Activision Blizzard hafa greitt atkvæði með því að samþykkja tillögu um að fyrirtækið skuli birta skýrslu þar sem m.a. er greint frá hvernig hægt er að koma í veg fyrir misnotkun, áreitni og mismunun á vinnustað Activision Blizzard. Fyrirtækið Activision hefur enn sem komið er aðeins sagt að það mun „íhuga vandlega“ hvort skýrslan verði birt. Skýrslan var unnin af ríkiseftirlitsmanni í New York, Thomas DiNapoli, en í skýrslunni kemur meðal annars fram heildarfjöldi kvartana um kynferðisofbeldi, áreitni eða mismunun sem fyrirtækið glímir við, en Activision stendur í fjölda málaferla sem tengjast þessum starfsháttum. Stjórn félagsins sendi hluthöfum í…

Lesa meira

Þrátt fyrir heimsfaraldur birtust jákvæðar fréttir af fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum árið 2021. Ekki síst fyrirtækjum á sviði nýsköpunar. Eitt þeirra fyrirtækja sem sló um sig með jákvæðum fréttum er tölvuleikjafyrirtækið 1939 Games. Félagið lauk á árinu 5,3 milljón Bandaríkjadala hlutafjárútboði og var valið Vaxtarsproti ársins 2021 hjá Samtökum Iðnaðarins. Er Ísland kannski að eignast fleiri stór fyrirtæki eins og CCP? Ef svo er, er til mikils að vinna. Ekki aðeins starfa hjá CCP ríflega 300 manns heldur var velta fyrirtækisins tímabilið 2017-2020 um sex til átta milljarðar á ári. Næst á eftir í tekjum fyrir tölvuleik er 1939 Games. Fyrsti…

Lesa meira

Það má með sanni segja að heimsklassa aðstaða fyrir rafíþóttir hefur verið opnað, en staðurinn heitir Arena Gaming og er staðsettur í 1100 fermetra húsnæði í Turninum í Kópavogi. Á staðnum er lansvæði með rúmlega 100 tölvur í boði, æfingaaðstaða fyrir rafíþróttir, einkaherbergi fyrir vina,- og vinnustaðahópa. Sérbúin keppnisherbergi og stúdío fyrir sjónvarpsútsendingar og að auki veitingastaðinn Bytes sem býður upp á fjölbreyttan matseðil. Í vetur verða haldnir viðburðir á borð við Smash-bros tournament, Arcade night, LockIn’. Fjöldi viðburða í samstarfi við RÍSÍ eins og CS:GO Stórmeistaramót Vodafone-deildarinnar að ógleymdum áhorfs partíum fyrir alla stærstu rafíþrótta- og tölvuleikjatengda viðburði og…

Lesa meira

Fulltrúar Samtaka leikjaframleiðenda (IGI), Rafíþróttasamtaka Íslands (RÍSÍ) og Game Makers Iceland (GMI) undirrituðu sáttmála um öruggt starfsumhverfi nú í vikunni í höfuðstöðvum CCP í Grósku. Sáttmálinn er afdráttarlaus og sendir skýr skilaboð um heilbrigt starfsumhverfi í tölvuleikjaiðnaði. Í sáttmálanum kemur fram að samtökin líða ekki einelti, kynferðislega eða kynbundna áreitni eða ofbeldi af neinu tagi og munu markvisst vinna að því að koma í veg fyrir slíka óæskilega hegðun, grípa til aðgerða til að stöðva hana og koma í veg fyrir að hún endurtaki sig auk þess að styðja við þolendur, að því er fram kemur á vef Samtaka Iðnaðarins.…

Lesa meira

Kínverska liðið Royal Never Give Up hafði betur gegn suðurkóreska liðinu DAMWON Gaming í úrslitaviðureign Mid Season Invitationalmótsins í tölvuleiknum League of Legends sem haldið er hér á landi í Laugardalshöll. Var staðan jöfn, 2-2, þegar fimmti og seinasti leikurinn var spilaður en hann endaði með sigri Royal Never Give Up, að því er fram kemur á mbl.is sem fjallar nánar um mótið hér. Sjá einnig: https://esports.is/eitt-staersta-rafithrottamot-heims-i-laugardalsholl/ Mynd: lolesports.com

Lesa meira

Danski tölvuleikjaspilarinn Johan „N0tail“ Sundstein er tekjuhæsti leikmaður heims í Esports samfélaginu. Johan spilar tölvuleikinn Dota 2, en hann hefur þénað fram til þessa rúmlega 7.4 milljónir bandaríkjadali í verðlaunafé. Johan hefur t.a.m. spilað með liðunum Fnatic, Team Secret, Cloud9 og OG. BBC fréttastofan heimsótti Johan í nýja 17 herbergja glæsihúsið hans sem staðsett er í bænum Lisbon í Portúgal og fylgdust með æfingum, undirbúning fyrir stórmót ofl. Fréttaritari BBC Joe Tidy, ræddi meðal annars við Johan um Dota 2 og framtíðina, en samkvæmt öllum formúlum í eSports heiminum, þá er Johan orðinn „of“ gamall í eSports heiminum, en hann…

Lesa meira

Call of Duty: Warzone hefur verið gríðarlega vinsæll leikur frá því að hann kom út í fyrra, en það er tölvuleikjafyrirtækið Activision sem framleiddi leikinn. Nú hefur Andy, sem er sjálfstæður tölvuleikjaforritari, verið stefnt af Activision þar sem honum er sakað um að hafa stolið Warzone nafninu og krefja þess að hann afsali sér nafninu og eins afhenti Activision heimasíðuna Warzone.com. Andy segir að þetta sé langt í frá rétt að hann hefur stolið nafninu Warzone, því að hann hefur starfað s.l. 10 ár við að hanna tölvuleikinn WarLight og áframhald af þeim leik hefur hann gert leikinn Warzone sem…

Lesa meira