Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Spennan í Ljósleiðaradeildinni nær hámarki á laugardagskvöld þegar úrvalsdeildarliðin Dusty og Þór berjast um Íslandsmeistaratitilinn í Counter Strike í Arena á Smáratorgi. Þór komst í úrslit með sigri á liði Ármanns á þriðjudaginn og Dusty stimplaði sig sannfærandi inn með því að leggja Veca í seinni undanúrslitaleiknum á fimmtudaginn. Tómas Jóhannsson, sem hefur lýst öllum umferðum Ljósleiðaradeildarinnar í beinni útsendingu, telur víst að úrslitaviðureign milli Dusty og Þórs sé sá leikur sem flestir áhorfendur hafi viljað sjá. Enda eigi liðin tvö stærstu áhangendahópa landsins og eru auk þess, í það minnsta á pappírunum, skipuð mörgum bestu leikmönnum landsins í Counter…

Lesa meira

Einvígi Denasar Kazulis og Kristófers Tristans um toppsæti ELKO-Deildarinnar lauk í gærkvöld og eftir tíu vikur og tuttugu leiki er ljóst að Denas hampar bikarnum sem sigurvegari deildarinnar með 428 stig á móti 415 stigum Kristófers. Denas Kazulis (denas 13) og Kristófer Trist­an (iKristoo) hafa í raun háð einvígi á toppi ELKO-Deildarinnar í Fortnite meira eða minna allt keppnistímabilið og óvissunni um hvor þeirra myndi standa uppi sem sigurvegari var ekki eytt fyrr en að síðustu umferð venjulegs leiktímabils sem lauk eins og áður segir í gærkvöldi, að því er fram kemur á rafíþróttasíðu mbl.is sem fjallar nánar um málið…

Lesa meira

Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór spjalla um nokkra nýlega leiki í nýjasta þætti hlaðvarpi Nörd Norðursins Í þættinum ræða þeir um Call of Duty: Black Ops 6 sem kom út 25. okt s.l., Dragon Age: The Veilguard Horizon Zero Dawn Remastered, tölvuleikinn Landnámu (sjá nánar hér) svo fátt eitt sé nefnt. Í lokin er minnst á tvær nýlegar heimildarmyndir sem vekja áhuga og tengjast tölvuleikjum. Fleiri þættir hér Mynd callofduty.com

Lesa meira

Fjórða mótið í Íslensku PubG deildinni fór fram í kvöld sunnudaginn 3. nóvember og hófst mótið stundvíslega kl 20:00 og stóð yfir til miðnættis. Virkilega vel heppnað mót og voru 17 lið skráð til leiks. Spiluð voru 6 kort og uppröðunin var eftirfarandi: Erangel, Erangel, Taego, Taego, Miramar, Miramar sem er öfug röð frá síðasta móti. Úrslit urðu þessi: 1. sæti – Pungarnir 2. sæti – 354 eSports 3. sæti – Úlfur Heildarstigin Leikmenn Bein útsending var á mótinu á twitch rásinni 354 esports snapster og steypa sáu um að lýsa mótinu. Breyting var á mótinu en hvert lið greiddu…

Lesa meira

Búið er að ákveða næsta PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) online mót, en það verður haldið sunnudaginn 3. nóvember og er að mestu sama fyrirkomulag og fyrri mót. Skráning hafin Skráning er hafin og fer sú skráning fram í þessu skjali hér. Mælt er með því að vera með varamann ef einhver keppandi komist ekki af óviðráðanlegum ástæðum. 5.000 þátttökugjald Breyting á mótinu er að öll lið þurfa að greiða 5.000 í þátttökugjald. Hingað til hafa mótsjórnendur þurft að greiða úr eigin vasa til lýsendur, þá snapster og steypu fyrir sína vinnu. Áætlað er að sigurliðið fái frítt inn í næsta mót.…

Lesa meira

Mótastjórn League of Legends (LoL) Esports Ísland mun halda community-helgi dagana 26. – 27. október næstkomandi, í samstarfi við Next Level Gaming. Next Level Gaming er með mjög góða aðstöðu í Egilshöll sem LoL samfélagið mun nýta sér þessa helgi. Eftirfarandi viðburðir verða um helgina, en nánari dagskrá kemur síðar á facebook viðburðinn hér: – LoL Worlds semi-finals watchparty – Minimót – Pub quiz – og fleira skemmtilegt Mynd: leagueoflegends.com

Lesa meira

Íslenska PUBG samfélagið hélt online mót í gærkvöldi, sunnudaginn 13. október og hófust herlegheitin klukkan 20:00. Bein útsending var á mótinu og að auki var mótið sýnt á risaskjá í Next Level Gaming í Egilshöllinni. Það var 354 eSports sem sáu um beinu útsendinguna á twitch.tv/354community þar sem snapster og steypa sáu um að lýsa leikjunum af sinni alkunnu snilld. Draazil sá svo um að stýra observer. Sex kort voru spiluð en þau voru 2x Erangel, 2x Miramar, 2x Taego og í þessari röð. Er þetta í þriðja sinn sem að mótið er haldið og virðist áhuginn á PUBG mótinu…

Lesa meira

Næsta online mót í leiknum PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) hjá íslenska Pubg samfélaginu verður haldið 13. október og hefst mótið klukkan 20:00. Búið er að opna fyrir skráningu liða og er fyrirkomulagið líkt og síðast. Max 18 lið geta skráð sig í mótið og gildir reglan að fyrstir koma fyrstir og eftir það verður biðlisti. Skráning hér. Tekið verður strangt á skráningu liða, en það er ef lið er ekki tilbúið með 4ja manna lið daginn fyrir mótið eða kl 18:00 á laugardeginum 12. okt þá gefa mótshaldarar efsta liðið af biðlistanum inngöngu. Mælt er með því að vera með varamann…

Lesa meira

Leikjavarpið hjá Nörd Norðursins snýr aftur eftir gott hlé.  Í þessum þætti fjalla vinirnir Daníel Rósinskrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór um PlayStation 5 Pro sem er væntanleg í verslanir næstkomandi nóvember. Þar fara þeir yfir við hverju má búast og hvernig er Pro útgáfan öflugri en hefðbundna PlayStation 5 og margt fleira. Tríóið ræðir einnig um einn af betri leikjum ársins, Astro Bot, sem er fyrsti leikurinn fær fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá þeim nördunum. Hlustið á leikjavarpið í spilaranum hér fyrir neðan: https://open.spotify.com/episode/2xc1GtFjJcLOH9OiqviKGW?si=nPWmXL1kScSZrN4KQZT6ww Mynd: facebook / Nörd Norðursins

Lesa meira