Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Enn bætist við á listann yfir Íslenskar Fb grúppur hér á eSports.is og hefur facebook grúppan Íslenska Rust Samfélagið verið stofnuð. Hvetjum alla til að kíkja á Íslenska Rust Samfélagið og deilið skemmtilegum sögum og skjáskotum úr leiknum. Mynd: playrust.com
Á morgun, miðvikudaginn 22. janúar, verður útsending á Twitch hjá blizzheroes klukkan 19:00 á Íslenskum tíma en þar mun Dustin Browder, aðal framleiðslustjórnandi leiksins Heroes of the Storm ( HotS ) sitja fyrir svörum ásamt þeim Kaeo Milker og Kevin Johnson, sem eru einnig hátt settir fýrar hjá Blizzard, að því er fram kemur á facebook grúppu Íslenskir Heroes of the Storm. Þeir sem eru á Twitter geta baunað á þá spurningar sem vonandi verða notaðar á @BlizzHeroes, en taggið er: #HeroesQA. Það verður fróðlegt að fylgjast með umræðunni og það er aldrei að vita nema að í ljós kemur…
Í kvöld var haldið League Championship Series (LCS) partý á Hressó Hressingarskálanum við Austurstræti 20. Riot framleiðendur leiksins league of legends voru á staðnum og buðu uppá bjór, gjafir ofl. til LoL spilara en fullt var út úr dyrum á fyrsta LCS partý á íslandi. Vel heppnað LCS partý og má fastlega gera ráð fyrir að það verði endurtekið. Ef þú lumar á myndum frá LCS partýinu, þá máttu gjarnan senda okkur á netfangið [email protected] til birtingar hér á vefnum. Mynd: af facebook síðu Hressó.
Einn stjórnandi á fb-grúppunni „Íslenskir Heroes of the Storm“ birtir skemmtilegan pistil þar sem hann lýsir Abathur, einni af hetjunum í leiknum. Hér að neðan er lýsingin: Nú er komið að því að lýsa einni af þeim hetjum sem telst til nýrrar tegundar flokks. Öll þekkjum við stríðsmanninn eða skriðdrekann, hetjuna sem þolir högginn, eða dráparann, þann sem veitir högginn, og svo stuðningshetjuna, þá hetju sem heldur öllum liðsmönnum sínum uppi. Blizzard kynnir nú til leiks sérfræðinginn (e. specialist). Þetta er ögn öðruvísi form af hetjum. Dæmið í dag er enginn annar en aflið á bakvið þróun Zerg í Starcraft…
Ghost Gaming tekur hér spilara í einkatíma og kennir þeim að fljúga þotu í leiknum Battlefield 4: Mynd: Skjáskot úr leik.
Sett hefur verið upp sér undirsíða þar sem íslenskar facebook grúppur eru listaðar upp, en hægt er að nálgast listann í valmyndinni hér að ofan. Allar ábendingar eru vel þegnar ef það vantar einhverja íslenska tölvuleikja facebook grúppu á listann, en hægt er að senda í gegnum þetta einfalda form eða senda okkur tölvupóst á netfangið [email protected], …… hey, það er líka hægt að láta okkur vita með að commenta hér fyrir neðan. Smellið hér til að skoða listann. Mynd: facebook.com
Leikurinn Heroes of the Storm frá Blizzard verður free-to-play, en ekki er ennþá kominn útgáfudagur á leiknum. Þangað til er hægt að undirbúa sig og joina aðra íslenska og yfirspennta íslenska Heroes of the Storm aðdáendur með því að smella hér. Ég ætla að reyna að hafa allt það sem ég set inn varðandi leikinn (eins og lýsingar á hetjum og kortum) á íslensku, svo það getur stundum hljómað kjánalega, en það vonandi skilst og verður einnig vonandi fyrigefið , sagði einn af stjórnendum facebook grúppunnar Heroes of the Storm. …þetta verður tryllt flottur leikur. Vonandi, og ég meina vonandi,…
Íslensku tölvuleikja spilararnir Jolli, ReaN, clvr, Reynz1 spila núna undir formerkjum þýsku alþjóðlegu samtökin myRevenge í leiknum Counter strike: Global Offensive og eru þar með myR.is, en 5th verður kynntur á næstu dögum. myRevenge inniheldur fjölmörg lið, til að mynda í leikjunum League of Legends, FIFA, DotA 2 og eru samtökin einnig með kvennadeild í fyrrnefndum leikjum. Okkur var bent á þegar byrjuðum í ESEA um að joina einhver samtök, þannig að við ákvaðum að tala sjálfir við myR og fengum að komast í prufu og höfum unnið okkur upp með því að komast t.a.m. í playoffs i ESEA, vinna…
Fyrirtæki í Reykjavík stefnir á að setja upp nokkra servera og hafði samband við eSports.is með ósk um að kanna hug spilara í Íslenska leikjasamfélaginu hvaða leikja servera vantar. Takið þátt í könnunni hér: [poll id=“3″] Commenta hér að neðan ef þú vilt sjá aðra servera en þeir sem eru í könnunni. Við komum svo til með að flytja ykkur fréttir þegar hver og einn server fer í loftið, stay tuned. Öll aðstoð er vel þegin með því að deila könnunni inn á ykkar leikja facebook grúppur. Mynd: fengin af netinu.
Leikurinn Rust byggir á sjálfsbjargarviðleitni spilara og er hannaður af fyrirtækinu Facepunch Studios en leikurinn er í takt við DayZ, Minecraft og Stalker. Einn íslenskur Rust spilari hefur sett upp server: IP: 62.210.190.63 Port: 28095 Name: Niceland Go nutz 🙂 Mynd: Skjáskot úr myndbandi
