Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Síðastliðinn sunnudag var fyrsta GEGT1337 StarCraft II online mótið á nýju ári og úrslitin urðu þannig að GEGT ignite sigraði GEGT awesome í finals og og í þriðja var GEGT skimpy. Er GEGT1337 eina active liðið á landinu?
Það er búið að vera fjör á Íslenska Counter Strike:Source servernum síðustu daga og hefur serverinn verið nær fullur öll kvöld. Þeir sem hafa áhuga á að joina þá er IP: 5.23.90.33:27015 Mynd: Skjáskot af leik.
Nýtt útlit, uppröðun og annað efnið hefur verið flokkað upp á nýtt hér á eSports.is. vefurinn er skalanlegur fyrir snjallsíma, ipad og margt annað hefur verið uppfært. Með nýju ári fögnum við nýju upphafi og styrkjum fréttaflutning enn frekar á eSports.is.
Það er ekkert launungarmál að forums er í undanhaldi eftir að facebook varð viral og er spjallið hér á eSports.is engin undantekning þar á. Lýsandi dæmi sem að facebook hefur drepið spjallsvæði, þá þarf ekki að horfa lengra en á Hugi.is sem var ein vinsælasta spjallsíða í mörg ár til sælla minningar. Þó svo að spjallið sé ennþá up and running á bakslóð og admin´s fylgjast með því, þá verður það ekki aðgengilegt frá forsíðunni. Mynd: samsett mynd af netinu.
League of Legends spilarinn í meðfylgjandi myndbandi hefur mjög einfalda lausn á því hvernig eigi að hafa gamna af því að spila leikinn: Það kannast nú flest allir við samskiptin í Íslenska LoL samfélaginu.
Awesome Games Done Quick 2014 hófst í gær og stendur fram til 11. janúar næstkomandi. Hér er um að ræða árlegan viðburð um speedrunning tölvuleiki. Mælum með því að horfa á steaming frá þeim félögum með því að smella hér og jú það er líka hægt að fylgjast með umræðunni á irc rás þeirra #sdamarathon á QuakeNet fyrir þá sem vilja. Mynd: Skjáskot af streaming AGDQ 2014.
Tölvuaukahlutaframleiðandinn Roccat kynnti á síðasta ári nýja tækni sem þeir kalla Power-Grid og er alveg frí. Power-Grid er forrit sem er sótt í tölvuna, forritið talar síðan við smáforrit í Apple eða Android snjallsíma, að því er fram kemur á vefsíðu ormsson.is Power-Grid tekur snjallsímann þinn og breytir honum í fullkomna stjórnstöð fyrir tölvuna þína. Í Power-Grid skiptist í nokkra flokka eins og „Incoming Center“ þar geturu fylgst með hlutum eins og Facebook, Twitter, Skype, TeamSpeak og RSS. Nánari upplýsingar er hægt að lesa með því að smella hér. Mynd: Skjáskot af myndbandi.
Næstkomandi sunnudag 5. janúar mun GEGT1337 halda fyrsta mót á nýjuári og er stefnan tekin á að hafa 1337 mótin reglulega í vetur. Nánari upplýsingar er hægt að finna á feisinu hjá íslenska SC2 samfélaginu hér.
Íslenski Draazil hópurinn gaf út í gær samansafn af viðbrögðum við hryllingsleikjum í tilefni nýs árs og virðast meðlimir skemmta sér konunglega. Mynd: aðsend
Notandinn inyourmind á spjallinu auglýsir eftir leikmanni í clan í nýja Call of Duty: Ghosts leikinn, en nánari upplýsingar er hægt að lesa á spjallinu hér.
