Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Hvað færðu ef þú blandar saman Rubik’s Cube, sexhyrningi, Sudoku og koffíni? Ofvirkan tölvuleikjahönnuð sem hannar tölvuleik sem er að vekja mikla lukku og ekki einu sinni komin út. Tölvuleikurinn Prismatica er hannaður af Þórði Matthíassyni, forritara og eðalnördi. Í þessum skrifuðu orðum situr Þórður límdur fyrir framan tölvuskjáinn og leggur lokahönd á frumgerðina af leiknum sínum en Þórði var boðið að mæta með tölvuleikinn á tölvuleikjahátíðina Radius Festival í London næstkomandi föstudag 20. júní 2014. Það eru stórtíðindi fyrir Prismatica og Þórð því það sem byrjaði sem áhugamál gæti nú orðið að einhverju svo miklu stærra og meira. Leikurinn…
Það verður nú að segjast að leikjafrettir.is voru með ansi þétta fréttaumfjöllun af tölvuleikjaráðstefnunni E3 2014. Þeir hafa tekið saman uppáhalds leikina sína og tilkynningar frá E3 í síðustu viku og það sem stóð helst upp úr á E3, en hægt er að lesa nánar með því að smella hér. Mynd: assassinscreed.ubi.com
Draazil strákarnir spila hér nýjan hryllingsleik sem ber heitið Among the Sleep og kom út 29. maí s.l. Sagan hefst eins og tveggja ára gamall smábarn er að fagna afmæli sínu heima með móður sinni sem btw Draazil hreinlega slefa yfir. Creepy leikur og bíðið þar til að barnið fer inn í skápinn og…… no spoiler, en hér að neðan er playlist frá Draazil: Mynd: Skjáskot úr myndbandi.
Tölvuleikjasýningin E3 hófst í gær í Los Angeles í bandaríkjunum og lýkur á morgun fimmtudaginn 12. júní, þar sem allra helstu tölvuleikjaframleiðendur heims frumsýna fjölmarga leiki. Fyrir þá sem áhuga hafa að fylgjast vel með er bent á að kíkja á vinsælu tölvuleikjasíðurnar leikjafrettir.is og nordnordursins.is, en síðurnar gera góð skil á E3 sýningunni.
Það er komið að því, en lanmótið HRingurinn verður haldið dagana 8.-10. ágúst 2014 í Háskólanum í Reykjavík á vegum Tvíundar. Reikna má fastlega með því að keppt verður í leikjunum League of legends, Starcraft 2, DotA 2 og Counter-Strike: Global Offensive, en þessir leikir voru á lanmótinu í fyrra ásamt lanpartý. Ýmsar spurningar hafa ávallt vaknað í kringum lanmótin, en hægt er að lesa nánar um spurt og svarað frá því árið 2012 hér sem vænta má að verður einhver breyting á fyrir þetta árið. eSports.is kemur til með að vera á vaktinni og flytja ykkur fréttir í máli…
Það hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum tölvuleikjaspilurum að EVE Fanfest hátíðin og ráðstefna CCP hófst í Hörpu í dag, en hátíðin kemur til með að standa yfir til og með 3. maí nk. Alls er búist við að um 3.000 manns sæki hátíðina um helgina, að því er fram kemur á mbl.is. Meistarinn Thor er á EVE Fanfest hátíðinni og lofar ítarlegt VLOG umfjöllun alla helgina, en hér að neðan er hægt að horfa á fyrsta vídeóið hans: Dagskrá EVE Fanfest í heild sinni má nálgast hér. Mynd: Skjáskot úr myndbandi.
Það verður nú að segjast að lítið hafi farið fyrir íslenskum tölvuleikjaspilara sem kallar sig Thor, en hann hefur útbúið fjölmörg vídeó sem innihalda gagnrýni, gameplay, umfjallanir og margt fleira á hinum ýmsum tölvuleikjum. Þó svo gróf enskur/íslenskur hreimur er með myndböndunum, þá er engu að síður gaman af horfa á myndböndin. Hægt er að fylgjast með kappanum á facebook, youtube, twitch og twitter. Myndir: skjáskot úr myndbandi og á facebook síðu Thor.
Íslenska leikjasamfélagið ICEZ leitar að áhugasömum spilurum til að ganga til liðs við hópinn sem spilar aðallega Battlefield 3, Battlefield 4, ARMA 3 og Counter-Strike: Global Offensive. Við biðjum ekki um mikið af okkar liðsmönnum annað en að þeir verði á TeamSpeak 3 þegar verið er að spila og nota ICEZ klan merki og vera að lágmarki 16 ára eða eldri. Erum einnig að leita af fólki sem kann að búa til almennileg video til að gera „Recruitment“ video fyrir okkur! endilega sendið okkur póst ef þið hafið það sem það tekur! Finnst þér vanta leikjaservera fyrir Battlefield 3, Battlefield…
Íslenska Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO) samfélagið er að koma vel undan vetri og er mikil gróska í gangi. Það hefur vakið athygli hvað mörg íslensk CS:GO lið eru til, en nú á dögunum fór af stað online mót á vegum GEGT1337 og eru 16 lið skráð í keppnina. Mótið er DBL ELIM og lýkur fyrsta umferðin í dag. Glæsilegt framtak hjá GEGT1337, en hægt er að fylgjast með mótinu með því að smella hér og svo þar efst uppi GEGT1337.
Gömlu jálkarnir ættu nú að muna eftir Skjálfta lanmótunum hér í denn, enda voru þau mót sem skáru út hvaða lið eru best á Íslandi í hinum og þessum tölvuleikjum. Nú hefur Skjálfti verið endurvakið og að þessu sinni ekki sem lanmót heldur sem online mót og verður keppt í hinum vinsæla leik League of Legends. Allar upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Skjálfta á vefslóðinni: www.skjalfti.is Mynd: Skjáskot af skjalfti.is
