[show-logos orderby='none' category='styrktaradilar' activeurl='new' style='boxhighlight' interface='grid' tooltip='false' description='false' limit='3' filter='false' ]
Heim / Lan-, online mót / Með atvinnumannasamning í tölvuleikjum
Auglýsa á esports.is?

Með atvinnumannasamning í tölvuleikjum

Jökull "Kaldi" Jóhannsson

Jökull „Kaldi“ Jóhannsson
Mynd tekin á Dreamhack 2014

Jökull „Kaldi“ Jóhannsson hefur skrifað undir atvinnumannasamning í tölvuíþróttum við bandaríska liðið Tempo Storm.  Jökull keppir undir merkjum Tempo Storm í leiknum Hearthstone, þar sem hann kallar sig Kaldi.

Ég spilaði Starcraft áður og hafði eitthvað upp úr því, en ekkert í fullu starfi. Síðan byrjaði ég á þessu af fullum krafti í byrjun árs,

segir Jökull í samtali við Viðskiptablaðið, en hann er 22 ára gamall. Utan þess að keppa fyrir hönd liðsins á mótum heldur hann úti síðu á streymisíðunni Twitch, auk þess sem hann hefur tekið að sér að lýsa mótum og keppnum í Hearthstone.

Þetta er mjög fínt. Ég er mikið að lýsa mótum erlendis og er mikið að ferðast út af því. Þetta er dálítið fjölbreytt, kannski er ég að lýsa móti einn daginn og er síðan að keppa í deildarkeppni daginn eftir,

segir hann.

Greint frá á vefsíðu Viðskiptablaðsins.

Tengdar fréttir:

  • Ekkert efni.

Mynd: aðsend

 

Um Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Svara

Netfang verður ekki birt

x

Check Also

Rafíþróttasamtök Íslands

Úrslit í rafíþróttaviðburði Íslands í Laugardalshöllinni

Síðastliðna helgi var haldin einn ...