Búið er að ákveða næsta PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) online mót, en það verður haldið sunnudaginn 3. nóvember og er að mestu sama fyrirkomulag og fyrri mót.
Skráning hafin
Skráning er hafin og fer sú skráning fram í þessu skjali hér. Mælt er með því að vera með varamann ef einhver keppandi komist ekki af óviðráðanlegum ástæðum.
5.000 þátttökugjald
Breyting á mótinu er að öll lið þurfa að greiða 5.000 í þátttökugjald. Hingað til hafa mótsjórnendur þurft að greiða úr eigin vasa til lýsendur, þá snapster og steypu fyrir sína vinnu. Áætlað er að sigurliðið fái frítt inn í næsta mót.
Bankaupplýsingar eru í skráningarskjalinu og athugið að edit réttindi fæst ekki fyrr en eftir greiðslu.
Biðla til fjársterkra aðila
Ef einhverjir fjársterkir aðilar sem hafa áhuga á að styrkja mótið að einhverju leiti, þá er bent á að hafa samband við mótstjórn á netfangið [email protected]
Vídeó
Hér að neðan er upptaka frá síðasta móti þar sem pungarnir hrepptu 1. sætið:
Mynd: skjáskot úr myndbandi