Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
eSports.is hefur fjallað um Battlefield 3 liðið Catalyst Gaming sem hefur verið að keppa í Spring 2012 á Clanbase og hafa staðið sig alveg ótrúlega vel. CG náði að komast í semi final en því miður náðu þeir ekki sigri gegn TeamSVK og enduðu í 4. sæti í sínum riðli. Samt sem áður frábær árangur og hefur verið gaman að fjalla um kappana. „…við enduðum í 4. sæti í 2. riðli í þessu móti sem við vorum að klára. Frekar súrt samt en svona er þetta víst“, sagði Muffin-King í samtali við eSports.is aðspurður um úrslitin í seimi final. Óskum…
Skráning í Counter Strike:Source online mótið tikkar, en nú hafa þrjú lið skráð sig í mótið, en það eru tampoNs, SEMI SRS og cuntwave. Núna í vikunni verður nánari upplýsingar og fyrirkomulag birtar hér um mótið og er það í fyrsta sinn í sögu Css mót sem þetta fyrirkomulag er reynt, en nánar um það síðar. Skráið ykkur sem fyrst. Clanleysu listi hér. <<– Viltu vera með, en vantar lið?
MMOFPS leikurinn PlanetSide 2 verður gefinn út af Sony Online Entertainment og er þetta sjálfstætt framhald af leiknum PlanetSide sem gefin var út árið 2003. Ekki er komin útgáfudagur af leiknum, en tilkynning um útgáfudag var gefin út á sýningunni Sony Fan Fair í fyrra um að hann kæmi út 7. júlí 2011 og síðan þá hefur ekkert gerst fyrr en nú nýlega, en þá virðist vera komin einhver hreyfing á hönnuninni. „Var enda við að fá Planetside2 beta priority key. Kannski ég skelli upp video um leikinn á íslensku og kynni fyrir ykkur sem eru áhugasamir um hvað leikurinn…
eSports.is fær reglulega styrkbeiðnir frá liðum í hinum ýmsum tölvuleikjum og hafa stjórnendur reynt að styrkja þessi lið að bestu getu. Öll vinna í kringum vefinn á vegum eSports.is er unnin í sjálfboðavinnu, sem gefur augaleið að ekki eru miklir peningar í gangi. eSports.is vinnur markvisst að þeirri stefnu að auka áhuga fyrir aukinni spilamennsku í hinum ýmsum leikjum. Allar nánari upplýsingar um styrkumsóknir er hægt að lesa með því að smella hér.
Í maí var farið af stað með Counter Strike 1.6 (Cs 1.6) online mót og voru það Jolli og Johnny sem áttu veg og vanda að undirbúningi mótsins. Engin lið hafa skráð sig í mótið samkvæmt heimasíðu mótsins. Ekki náðist í Jolli við gerð fréttar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Leeroy sýnir á spjallinu flottar klippur úr leiknum Counter Strike:Source:
Skemmtilegt myndband sem að íslenski Battlefield 3 spilarinn HoBKa- póstar inn á spjallið, en þar fer hann í hamförum með kutann og drepur þar meðal annars Death_TOOl sem var búinn að skjóta HoBKa- nokkrum sinnum. HoBKa- var orðinn ansi pirraður og tók þessar snilldar hefnd á Death_TOOl, eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi:
Muffin-King sýnir hér alveg snilldartakta með með shotgun MK3A1 í Battlefiled 3, en hann segir meðal annars á spjallinu; „ég var að nota shotgun þegar ég tók þetta upp, að nota haglarann; „MK3A1“ eða eins og hann var kallaður í Battlefield 2: „The Jackhammer“. Smá inside-húmor 😛 „
„Hrikalega hrá klippa þar sem ég tók upp nokkur heil round í Skriðdreka. Skemmtið ykkur nú ef ykkur leiðist. Þetta er nokkuð langt með fínustu bardögum inn á milli“ segir Muffin-King á spjallinu, en þar póstar hann rúmlega 13 mínútna myndband af leiknum Battlefield 3 sem hann kallar „Raw Public Tank Footage“:
eSports.is hefur heyrt þónokkuð um að lið hafi huga á því að skrá sig í Counter Strike:Source online mótið og hafa meðal annars gömul lið verið að fínpússa byssurnar og hafa hug á því að vera með. tampoNs hefur skráð sig í online mótið, en liðið er skipað af: tunchei Milf H0wTh3? veRticaL lawLcudi bigOJ Skráið ykkur sem fyrst Hvetjum öll lið að skrá sig sem fyrst, en ekki bíða með það fram á síðasta degi. Það er hvetjandi fyrir lið að sjá góða skráningu. https://esports.is/forums/index.php?/topic/24757-skraning-i-css-online-mot/ Clanleysur – Viltu vera með, en vantar lið? Fumlegt nafn á liði: tampoNs 🙂
