Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

EVE Fanfest 2026 nálgast með fullum krafti og nú hafa skipuleggjendur tilkynnt dagskrá og alla viðburði Fanfest-vikunnar. Hátíðin fer fram dagana 14. til 16. maí 2026 í Hörpu í Reykjavík, með fjölbreyttum viðburðum sem teygja sig einnig yfir dagana í kringum aðalhátíðina. Á dagskránni má finna bæði klassíska Fanfest-viðburði sem margir aðdáendur þekkja vel, sem og nýjar og spennandi uppákomur sem dreifast um borgina. Markmiðið er skýrt, að bjóða upp á upplifun sem sameinar EVE Online samfélagið, leikjamenningu og Reykjavík sjálfa. Sumir viðburðir verða opnir öllum og án aðgangseyris, á meðan aðrir krefjast miða. Skipuleggjendur minna á að ýmsar upplifanir…

Lesa meira

GameTíví er aftur mætt í beinni útsendingu í kvöld, mánudag, klukkan 20:00, þar sem drengirnir ætla að kíkja undir húddið á Season 2 í Call of Duty: Black Ops 7. Þar verður farið yfir helstu breytingar, nýtt efni og það sem skiptir leikmenn mestu máli þegar nýtt tímabil gengur í garð. Útsendingin fer fram á Twitch og er öllum opin sem vilja vera með þegar Season 2 er krufið til mergjar. Hægt er að fylgjast með í beinni á www.twitch.tv/gametiviis

Lesa meira

Stofnandi og forstjóri MindsEye hefur sakað ónefndan bandarískan risa um skipulagða skemmdarherferð gegn leiknum og stúdíóinu Build a Rocket Boy, herferð sem hann fullyrðir að hafi kostað yfir eina milljón evra á síðasta ári. Þetta kom fram á innanhússfundi með starfsfólki Build a Rocket Boy seint í janúar, þar sem Mark Gerhard opnaði fundinn á dramatískum nótum og sagðist vera „búinn að hafa hendur í hári þeirra sem stóðu að skemmdarverkunum“. Upptaka af fundinum var send til Insider Gaming með því skilyrði að hún yrði ekki birt opinberlega, en miðillinn birti hana engu að síður þar sem málið þótti fréttnæmt.…

Lesa meira

Annað mót tímabilsins í GameTíví-deildinni fer fram sunnudaginn 8. febrúar og hefst klukkan 20:00. Spilað verður í FPP og kvöldið keyrt í fullu keppnisfyrirkomulagi, með allt sem því fylgir. Þetta er mót númer tvö af fimm á tímabilinu og þar er ekkert verið að bíða eftir neinum. Það er bara að mæta og spila. Hvert mót er sjálfstæð keppni, þannig að engin skuldbinding fylgir þátttöku. Samhliða safna lið stigum í deildinni og það er alls ekki of seint að hefja sitt stigaclutch núna. Efstu sextán lið tímabilsins tryggja sér sæti í úrslitum og berjast áfram um sæti á Íslandsmeistaramótinu. Ný…

Lesa meira

Podracing-aðdáendur geta nú andað léttar. Þótt stikla Star Wars: Galactic Racer hafi vakið mikla lukku fyrir hraða og þessa klassísku setningu „þetta lítur ógeðslega vel út“, þá var eitt sem vantaði. Engir podracerar. Fyrir marga jafngilti það nánast Jedi-svikum, enda er podracing eitt það helgasta sem kom út úr Star Wars: Episode I: The Phantom Menace sem er hluti af minningu Star Wars-nörda. Leikurinn var kynntur í fyrra á The Game Awards og er í þróun hjá Fuse Games, nýju stúdíói skipuðu fyrrverandi Burnout-hönnuðum. Í stiklunni mátti glögglega greina Sebulba rétt í lokin, sem kveikti strax vangaveltur. Var hann aðeins…

Lesa meira

Mario Kart World heldur áfram að rúlla yfir sölulista Nintendo og hefur nú selst í yfir 14 milljónum eintaka frá útgáfu. Þetta kemur fram í uppgjöri Nintendo fyrir þriðja ársfjórðung rekstrarársins 2026, þar sem leikurinn er sagður langvinsælasti titillinn á nýjustu leikjatölvu fyrirtækisins. Samkvæmt uppgjörinu hefur Mario Kart World selst í samtals 14,03 milljónum eintaka frá útgáfu. Enginn annar leikur á Nintendo kerfinu kemst í nánd við þessar tölur, en næsti titill á listanum er Donkey Kong Bananza sem hefur selst í 4,25 milljónum eintaka, þrátt fyrir að hafa komið út tæpum sex vikum síðar. Til samanburðar hefur Nintendo Switch…

Lesa meira

Cloud9 hefur staðfest endurkomu sína í Halo rafíþróttum og mun taka þátt í Halo Infinite mótinu á DreamHack Birmingham í mars. Þetta markar endurkomu samtakanna eftir hlé í kjölfar breytinga á keppnisumhverfi titilsins. Mótið fer fram dagana 27. til 29. mars í Birmingham á Englandi og verður keppt í 4v4 keppni með 100 þúsund dollara verðlaunafé. Þjálfari Cloud9, Trevor „SenscR“ Frees, hefur jafnframt greint frá því að leitað sé að liði til að keppa undir merkjum samtakanna á mótinu. We’re looking to field a team for this upcoming event under @Cloud9. If you’re interested in representing one of the world’s…

Lesa meira

Eftir margra ára bið, vangaveltur á Discord og klassíska setningin „er þetta dautt eða?“ spjall á samfélagsmiðlum er loksins komið að því. Fruit Mixes snýr aftur og fer nú inn í sitt fjórða tímabil, öllum nördum til mikillar ánægju. Skráning í TF2 mótið hófst 1. febrúar og stendur til 20. febrúar, en mótið sjálft fer fram dagana 20. til 22. febrúar. Allir eru velkomnir og er lögð sérstök áhersla á að mótið sé aðgengilegt jafnt reynsluboltum sem nýliðum með drauma um clutch-moments og highlight klippur. Áður en fyrsta umferð hefst verður þátttakendum skipt niður eftir reynslu úr keppnisleikjum, þannig að…

Lesa meira

David Michaud-Cromp, leikjahönnuður hjá Ubisoft Montreal, hefur verið rekinn frá störfum eftir að hann gagnrýndi opinberlega nýja stefnu fyrirtækisins um að skylda starfsmenn til að snúa aftur í skrifstofuna fimm daga vikunnar. David Michaud-Cromp birti á LinkedIn þann 23. janúar færslu þar sem hann sagði að RTO-ákvörðunin væri ekki fyrst og fremst um samstarf eða framleiðni heldur tengdist stjórnunarstefnu og stjórnun á greiðslum fyrir skrifstofur, og margir starfsmenn innanhúss hafi verið ósáttir við breytinguna. Fimm dögum síðar tilkynnti hann að honum hefði verið gert að fara í launalaust frí í þrjá daga vegna orða sinna, en nú staðfestir hann að…

Lesa meira

Erik Shokov, betur þekktur sem Erik „shoke“ Shokov, eigandi og stofnandi Counter-Strike liðsins CYBERSHOKE, hefur veitt innsýn í kostnað og tekjur rafíþróttaliðs með því að birta opinberlega tölur um útgjöld og tekjur liðsins síðustu tvö og hálft ár. Slík gagnsæi er óalgengt í rafíþróttum, þar sem rekstrartölur liða eru jafnan haldnar leyndum. Í færslum á samfélagsmiðlinum X greinir Erik Shokov frá því að CYBERSHOKE hafi varið um 130 milljónum ísl. króna í rekstur á tímabilinu. Þar kemur fram að stærsti útgjaldaliðurinn sé laun og greiðslur til leikmanna og starfsfólks, sem nema vel yfir helmingi af heildarútgjöldunum. Þetta undirstrikar hversu mannaflafrekur…

Lesa meira