Í gær fór fram viðureign á milli Íslands og Noregs þar sem Warmonkeys kepptu fyrir hönd Íslands í sjöttu umferð online mótsins King of Nordic í Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO). Því miður tapaði Ísland og er Íslenska CS:GO samfélagið byrjað að örvænta, en Ísland tapaði t.a.m. öllum leikjum á seinasta tímabili.
Warmonkeys eru enn í smá basli með að fínpússa liðið eftir að nýr leikmaður kom í lineup þeirra hann th0rsteinnf. Þetta höfðu Warmonkeys að segja um leikinn:
„Góður leikur við Norðmenn sem þeir tóku í 2x framlengingu. Vissulega svekkjandi að tapa þessum blessaða KoN leik enn einu sinni, en við trúum því að við stefnum í rétta átt. Overpass er borð sem við erum ekki enn búnir að fara í gegnum með th0rsteinif svo eins og sást vorum við fyrst og fremst að spila á hittni frekar en alvöru kerfi.“
Hér að neðan eru nokkrir hápunktar frá leiknum:
kruzer – 3 M4A4 kills
ofvirkur sýnir AWP skillz
peterr snillingur með 4 M4A1-S kills