Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) stendur fyrir nýju Rocket League móti sem hefst í dag, 7. september, og mun standa yfir næstu mánuði. Keppt verður í Round Robin deild þar sem öll lið mætast áður en best settu liðin tryggja sér sæti í úrslitakeppni. Mótinu lýkur 29. nóvember þegar úrslitaleikur fer fram og krýnt verður sigurlið. Þátttakendur geta því átt von á löngu og krefjandi móti þar sem hvert stig getur skipt sköpum í leiðinni að úrslitum. Mynd: rocketleague.com

Lesa meira

Íslandsmót Símans í Netskák fer af stað á morgun, sunnudaginn 7. september, og stendur yfir fram til 23. nóvember 2025 þegar úrslitin fara fram. Mótið hefst með undankeppni þar sem keppt er um sæti í 16 manna úrslitunum. Þar verða leikirnir háðir í útsláttarfyrirkomulagi (Single Elimination) þar sem sigur þarf að nást í sjö leikjum (Best of 7). Áhugi er mikill á mótinu, enda í boði sérstakt tækifæri fyrir þá sem ná langt. Efstu átta keppendurnir tryggja sér þátttökurétt á Síminn Invitational, sem verður meðal stærstu viðburða í skák á netinu hérlendis. Skipuleggjendur eru Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) og Skáksamband Íslands…

Lesa meira

Það verður að segjast að í herbúðum PUBG er hart tekið á svindlurum. Nýjustu tölur frá Anti-Cheat Team sýna að á tímabilinu 25. til 31. ágúst voru alls 170.165 notendur bannaðir fyrir brot á reglum leiksins. Langstærsti hluti brotanna tengist svindlum, eða 162.329 tilfelli, en einnig voru leikmenn teknir úr umferð fyrir dráp á liðsfélaga, n.t. Team Kill (5.789), ólöglegt teaming (1.667) og misnotkun (380). Auk bannanna á notendum var gripið til víðtækra aðgerða gegn búnaði. Alls voru 51.463 tæki bönnuð, sem hafði bein áhrif á 79.327 notendur. Með þessu er PUBG að reyna að tryggja sanngjarnt leikjaumhverfi og gera…

Lesa meira

Liam „MaiL09“ Tügel, aðeins 16 ára gamall sænskur leikmaður, hefur náð ótrúlegum árangri í Counter-Strike 2. Hann komst nýlega í efsta sæti á heimslista FACEIT með 4.860 ELO, sem er einstakt afrek fyrir leikmann á hans aldri. FACEIT er vettvangur þar sem spilarar taka þátt í keppnisleikjum í tölvuleikjum eins og Counter-Strike 2. Þar er boðið upp á stigakerfi, mót og deildir sem spilarar um allan heim nota til að mæta jafningjum sínum og reyna að klífa upp heimslistann. FACEIT hefur með árunum orðið eins konar stökkpallur fyrir unga leikmenn sem vilja brjótast inn í atvinnumennskuna. At only 16 years…

Lesa meira

Úrvalsdeildin í Bridge hefst á morgun 5. september og stendur yfir til 14. nóvember, þegar úrslitin fara fram. Keppt verður í Round Robin fyrirkomulagi þar sem öll liðin mætast og hvert stig vegur þungt í baráttunni um sæti í úrslitum. Keppnina skipuleggja Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) í samstarfi við Bridgesamband Íslands. Stefnt er að faglegri framkvæmd og vönduðu umhverfi fyrir keppendur, enda hefur deildin á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af burðarstöðum íslenskrar spilamenningar. Mynd: pixabay.com

Lesa meira

Lanmótið Skjálfti verður haldið helgina 26. til 28. september í íþróttahúsinu í Digranesi. Sjá einnig: Skjálfti snýr aftur í Digranes Á mótinu verður keppt í Counter-Strike 2, League of Legends, auk klassískra leikja á borð við Counter-Strike 1.6 og Quake. Pláss er fyrir 240 keppendur og því um að gera að tryggja sér sæti sem fyrst. Skjálfti er stærsti LAN-viðburður ársins og mikil eftirvænting ríkir eftir að sjá keppendur mæta á svæðið í haust. Skráning fer fram á skjalfti.rafithrottir.is

Lesa meira

Skráning er hafin fyrir Haustmót Kids Coolshop sem fram fer í Arena gaming dagana 20. til 21. september. Mótið er ætlað iðkendum aðildarfélaga Rafíþróttasambands Íslands og er von á allt að 150 keppendum víðs vegar af landinu. Keppt verður í vinsælum leikjum á borð við Minecraft, Valorant og Fortnite þar sem ungir spilafélagar fá tækifæri til að sýna hæfileika sína á sviði rafíþrótta. Athugið að þátttaka er eingöngu fyrir aðildarfélög RÍSÍ. Nánari upplýsingar er að finna í gegnum tölvupóstfang sambandsins: [email protected]

Lesa meira

Kraftvéladeildin í Dota 2 fer af stað laugardaginn 6. september og stendur fram í 21. nóvember þegar úrslitaleikir verða háðir. Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ) og verður leikið í Round Robin deild þar sem öll liðin mætast áður en best settu liðin tryggja sér sæti í úrslitakeppni. Kraftvéladeildin hefur fest sig í sessi sem ein af helstu reglulegu keppnum í Dota 2 hér á landi og búast má við spennandi baráttu um hvert einasta stig fram að úrslitum. Mynd: dota2.com

Lesa meira

KIA-Deildin í League of Legends hefst á morgun 3. september og stendur yfir til 22. nóvember þegar úrslitin fara fram. Keppnin er sett upp sem Round Robin deild þar sem öll lið mætast áður en best settu liðin halda áfram í úrslitakeppni. Til gamans verður boðið upp á sérstakan Showmatch á Skjálfta í lok september, þar sem tvö efstu liðin í deildarkeppninni takast á. Að mótinu stendur Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ), sem gerir ráð fyrir mikilli spennu og jöfnum viðureignum í vetur. Mynd: leagueoflegends.com

Lesa meira

GameTíVí-deildin í PUBG hófst í gær, sunnudaginn 31. ágúst, með sex viðureignum þar sem 18 lið öttu kappi. Liðið OMNI stóð uppi sem sigurvegari eftir fyrstu umferðina með 88, stig sem skiluðu þeim öruggu forskoti á toppnum. Hlandblettur náði frábærum árangri og fór upp um fimm sæti í heildarstigum, endaði í öðru sæti með 59 stig. KNGR og Trudalestin fylgdu fast á eftir með 55 og 51 stig hvort um sig. Þar fyrir neðan mátti sjá hörð átök um sæti í miðjunni þar sem Hraunbitar, Team Iceland og Fresh börðust fyrir sætabreytingum, en Hot Drop og Nic Cage Fan Club…

Lesa meira